Hagvöxtur var 2,7 prósent á fyrsta ársfjórðungi samkvæmt fyrsta mati Hagstofunnar á stöðu þjóðarbúsins. Þetta er aðeins í þriðja skipti af síðustu tíu ársfjórðungum, síðustu tvö og hálft árið, sem hagvöxtur mælist á Íslandi.
Rúmlega þriggja prósenta hagvöxtur var á fyrsta og þriðja ársfjórðungi í fyrra og tæpra þriggja prósenta í byrjun þessa árs, miðað við sama tíma árin á undan. Annars hefur verið samdráttur alla ársfjórðunga frá og með fjórða ársfjórðungi 2023.
Viðsnúningur varð í utanríkisviðskiptum. Í fyrra var 66,5 milljarða halli á þeim en núna 5,9 milljarða afgangur. Þjóðarútgjöld drógust saman um 0,9 að raunvirði prósent og fjármunamyndun um 12,0 prósent. Einkaneysla jókst um 2,2 prósent og samneysla um 0,8 prósent.
Innlend einkaneysla hjaðnar almennt og kaup heimilanna á þjónustutengdum neysluvörum vaxa hægar en síðustu misseri. Frá þessu er þó ein undantekning því bílakaup landsmanna tóku við sér og einnig eykst einkaneysla Íslendinga á ferðalögum erlendis.