Tuttugu einstaklingar hafa verið dæmdir í samtals 277 ára fangelsi eftir umfangsmikla rannsókn á kynferðisofbeldi gegn stúlkum allt niður í 12 ára aldri í Yorkshire á Englandi. Brotin áttu sér stað á árunum 1995 til 2003 samkvæmt lögreglu.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í West Yorkshire voru fórnarlömbin ítrekað beitt nauðgunum og kynferðisofbeldi af hálfu hópsins. Einnig neyddi hópurinn sterk fíkniefni ofan í sumar þeirra, meðal annars heróín. Yngstu stelpurnar voru 12 ára gamlar.
Sex aðskilin réttarhöld
Málið var svo umfangsmikið að réttarhöldunum var skipt niður í sex aðskilin mál. Réttarhöldin hófust árið 2023 og lauk síðustu málunum árið 2024. Upplýsingar um hina dæmdu hafa hins vegar ekki verið birtar fyrr en nú vegna dómsúrskurða.
Þyngsta dóminn hlaut Sajid Majid, 53 ára, sem var dæmdur í 28 ára fangelsi fyrir fimm nauðganir og þrjú alvarleg kynferðisbrot. Manaf Hussain fékk 25 ára dóm fyrir sex nauðganir og fíkniefnabrot, en Tariq Azam var dæmdur í 24 ára fangelsi fyrir fimm nauðganir og fjórar kynferðislegar árásir.
Einn þeirra dæmdu, Ibrahim Khalifa, er 87 ára gamall og hlaut 11 ára fangelsisdóm fyrir tvær nauðganir.
Eina konan í hópnum, bresk kona að nafni Donna Lynn, fékk þriggja ára dóm fyrir að halda utan um skipulagt vændi.
„Meðhöndlaðar sem vörur“
Rob Stevens rannsóknarlögreglumaður sagði fórnarlömbin hafa verið „meðhöndluð sem vörur til að fullnægja miskunnarlausum rándýrum“.
Hann sagði hugrekki fórnarlambanna hafa verið lykilatriði í því að málið kæmist upp.
„Þessar konur sýndu gríðarlegt hugrekki með því að bera vitni í löngum réttarhöldum og tryggja að réttlætið næði fram að ganga,“ sagði Stevens.
Deilur um viðbrögð yfirvalda halda áfram
Málið er eitt af mörgum sambærilegum málum sem hafa komið upp á norðanverðu Englandi á síðustu árum. Í umfjöllun Daily Mail kemur fram að gagnrýni hafi áður komið fram um að yfirvöld hafi brugðist seint við slíkum málum af ótta við ásakanir um kynþáttafordóma.