Um 150 jarðskjálftar hafa mælst 8-10 kílómetra suðvestur af Reykjanestá síðan jarðskjálftahrina hófst þar upp úr klukkan 21 í gærkvöldi. Þetta segir segir Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, við mbl.is.
Hann segir hrinuna enn í gangi en engin leið sé að segja til um hve lengi hún muni vara.
Mesta virknin eftir fjögur og fimm í nótt
„Það er auðvitað engin leið að segja til hve lengi þetta verður en mesta virknin í þessari hrinu var svona eftir fjögur og fimm í nótt og svo hefur þetta farið minnkandi eftir því,“ segir Bjarki.
Stærsti skjálftinn sem mælst hefur í þessari hrinu mældist 3,5 að stærð. Að sögn Bjarka eigi þó eftir að yfirfara skjálftana og mun það ekki nást í dag.
„Hún er bara enn í gangi, kemur og fer. Það er algengt með þessar hrinur. Við erum ekki að búast við neinu og vitum ekki hvað kemur, við erum bara að fylgjast með þessu og sjá hvað gerist.“
„Þetta er auðvitað líka á flekaskilunum svo þetta tengist líklegast ekki því sem gerist í Grindavík.“