12 hið minnsta létust í þremur loftárásum Ísraelshers á Gaza í nótt og dag, þar af sex manna fjölskylda, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Hjón og fjögur börn þeirra létust í árásinni í al-Sabra hverfinu í vesturhluta Gazaborgar.
Ísraelsher segir að meðlimur Hamas-samtakanna hafi verið skotmarkið og að verið sé að rannsaka árásina.
Í dag létust fjórir í loftárás á heimili í al-Samar í Gazaborg og tveir til viðbótar létust í drónaárás hersins á bifreið í al-Zahra suður af Gazaborg. Ísraelsher hefur ekki tjáð sig um þær árásir.
Samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Hamas á Gaza hafa 1.168 Palestínumenn hið minnsta verið drepnir í loftárásum Ísraelshers síðan vopnahlé milli Ísrael og Hamas tók gildi í október. Fjórir ísraelskir hermenn hafi fallið í árásum á Gaza á sama tíma.
Nær 60 depnir á einni viku
Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna fordæmdi auknar árásir Ísraelshers á Gaza að undanförnu. Thameen Al-Kheetan, talsmaður stofnunarinnar, sagði að á milli 13. og 20. júlí hefðu 57 Palestínumenn hið minnsta, þar af sex börn, verið drepnir í loftárásum á íbúðarhús, tjaldbúðir fyrir flóttafólk og önnur fjölmenn svæði.
34 af þessum 57 hafi verið langt frá gula svæðinu svokallaða, svæði á Gaza sem er undir stjórn Ísraelshers.
„Níu mánuðum eftir tilkynningu um vopnahlé er enn hvergi óhult að vera fyrir Palestínumenn á Gaza,“ sagði Al-Kheetan.
Hann sagði einnig að áframhaldandi dráp á almennum borgurum vektu frekari áhyggjur af áframhaldandi brotum á alþjóðalögum, stríðsglæpum og öðrum mögulegum grimmdarverkum á Gaza.
Ísraelsher tilkynnti nýlega að von væri á fjölda árása á vopnaða palestínska hópa sem hefðu tekið þátt í árás Hamas-samtakanna á Ísrael 7. október 2023. Yfir þúsund Ísraelar voru drepnir í árásum og 251 tekinn í gíslingu.