Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO (e. World Health Organization) varar við örri útbreiðslu nikótínpúða á heimsvísu. Verkefnastjóri tóbaksvarna hjá embætti landlæknis segir brýnt að taka á söluumhverfinu og nauðsynlegt að koma í veg fyrir að ungt fólk byrji að nota nikótínpúða.
Í skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar sem kom út í dag er farið yfir aukna sölu nikótínpúða um allan heim. Markaðssetningin beinist einkum að ungmennum. Viðar Jensson, verkefnastjóri tóbaksvarna hjá embætti Landlæknis, segir brýnt að koma í veg fyrir að ungt fólk sé útsett fyrir því að nota nikótín.
„Þú verður háður nikótíni og ert stöðugt í því að passa að þú fáir ekki fráhvörf. Þetta hefur áhrif á svefn, skapsveiflur, einbeitingu og í raun og veru er mjög slæmt að ungt fólk sé að verða háð nikótíni,“ segir Viðar.
Þörf á harðara eftirliti og banni á bragðbætingu
Í skýrslunni er jafnframt kallað eftir því að stjórnvöld samþykki alhliða reglugerðir til að koma í veg fyrir áframhaldandi notkun nikótínpúða meðal ungs fólks. Viðar segir brýnast að banna auglýsingar, bragðbætingu og að hert verði eftirlit með sölufyrirkomulagi púðanna.
Hann segir notkunina á Íslandi vera einna mesta á Norðurlöndunum, 30 prósent ungra karlmanna og 20 prósent ungra kvenna noti þessar vörur daglega. Þá sýni skýrslan fram á að notkunin hafi ekki einungis færst í aukana hér á landi.
„Það sem kemur mér á óvart er að við höfum nú þegar séð þessa miklu notkun hér á Íslandi; við erum með hæstu notkun ungs fólks á nikótínpúðum á Norðurlöndunum og erum mjög há í rafrettum líka. En þessi skýrsla segir í rauninni að notkunin sé að aukast alls staðar.“
Tímamótin 2019/2020
Að sögn Viðars mörkuðu áramótin 2019/2020 tíma aukinnar notkunar nikótínpúða hér á landi sem haldist hefur mjög há. Stór hluti samfélagsins noti vörurnar daglega.
„Við þurfum bara að passa það að ungt fólk geti ekki keypt þessar vörur og að þessar vörur séu ekki auglýstar og að það sé verið raunverulega að fá ungt fólk til þess að nota þessar vörur með bragðefnum, með útliti og svo framvegis.“