Werner Ívan Rasmusson er látinn 95 ára að aldri. Morgunblaðið greindi frá. Werner var umsvifamikill í viðskiptum og auðgaðist verulega enda sinnti hann rekstri fjölda fyrirtækja á starfsævinni.
Eignarhaldsfélagið Ýlir átti 3% hlut í Kringlunni í kringum 1990, Werner rak Ingólfsapótek um árabil og var framkvæmdastjóri og stór hluthafi í lyfjafyrirtækjunum Pharmaco og Kemikalia.
Tveir synir Werners og fyrri konu hans, Önnu Kristjönu Karlsdóttur, þeir Karl og Steingrímur, hafa einnig verið áberandi í viðskiptum, voru um tíma meðal auðugustu manna landsins og áttu félagið Milestone sem átti hluti í fjölmörgum fyrirtækjum fyrir efnahagshrunið 2008.
Werner fæddist í Reykjavík, eldri sonur hjónanna Ivans Hugo Rasmusson og Ólínu Bjarnadóttur Rasmusson. Hann lauk stúdentsprófi vorið 1950 og hóf þá lyfjafræðinám í Reykjavíkurapóteki og Lyfjafræðingaskóla Íslands.
Hann útskrifaðist sem lyfjafræðingur frá Danmarks Farmaceutiske Höjskole 1953. Werner starfaði með Frímúrarareglunni, var heiðursfélagi í Rótarýklúbbi Kópavogs og skáti frá unga aldri.
Werner og Önnu varð fimm barna auðið, hin eru Ólafur Ívan, Anna Margrét og Ingunn Gyða. Anna lést 1994 og seinni eiginkona Werners er Kristín Sigurðardóttir. Hún á tvö börn. Útför Werners verður gerð í kyrrþey að hans ósk.