Vonskuveður er í kortunum á morgun þegar djúp og kröpp lægð gengur yfir landið með hvassviðri og úrkomu. Gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi á morgun, þær fyrstu strax í fyrramálið.
„Það er mjög djúp og kröpp óveðurslægð sem nálgast okkur úr suðri í nótt og í fyrramálið ganga skil frá henni inn á land með austan stormi og mikilli úrkomu – víðast hvar rigning á láglendi en á heiðum norðan- og vestanlands getur orðið hríð fyrripartinn á morgun,“ segir Teitur Arason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Síðdegis sé gert ráð fyrir því að miðja lægðarinnar gangi inn á land. Þar sé oft lítill vindur sem þýðir að veðrið skánar að öllum líkindum í suður- og austurhluta landsins og úrkoma minnkar. Hins vegar sé von á norðan stormi vestan við lægðarmiðjuna.
„Norðanáttin sækir kalt loft norðan að og þar með breytist úrkoman sem fellur á Vestfjörðum og Norðvesturlandi í slyddu eða snjókomu alveg niður á sjávarmál,“ segir Teitur.
„Þegar saman fara stormur og snjókoma getum við kallað það stórhríð og þess vegna höfum við gefið út appelsínugular viðvaranir á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra og þar er búist við því að það verði versta veðrið í þessu.“
Skaplegasta veður en nokkuð kalt
Hvenær verður þetta gengið niður?
„Þessi norðanátt með snjókomunni og hríðinni, hún færist síðan til austurs eftir norðanverðu landinu. Þannig að á Norðurlandi og Norðurlandi eystra og Austurlandi snjóar einnig aðfaranótt fimmtudags og fimmtudagsmorgun. En síðan færist lægðin hratt til norðausturs á fimmtudeginum og er úr sögunni. Síðdegis á fimmtudag verður bara komið skaplegasta veður á landinu en nokkuð kalt.“