„Þeir sam­þykktu, af því að ég segi að þeir sam­þykktu“ - Vísir

„Þeir sam­þykktu, af því að ég segi að þeir sam­þykktu“ - Vísir

„Þeir sam­þykktu, af því að ég segi að þeir sam­þykktu“ - Vísir

Forsetinn var spurður út í yfirlýsingu hans um að bæði Rússar og Úkraínumenn hefðu samþykkt að gera ekki árásir á orkuinnviði hvors annars og þá sérstaklega það að ráðamenn í báðum ríkjum sögðust ekkert kannast við slíkt samkomulag.

„Jæja, þeir samþykktu. Veistu af hverju? Af því að ég sagði „þið samþykkið“. Það er ástæðan. Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu.“

Þá var hann spurður út í það að Rússar hefðu strax brotið gegn þessu meinta samkomulagi.

„Tja, ég þyrfti að skoða það, því það hafa verið brot frá báðum hliðum.“

Forsetinn var strax í kjölfarið spurður út í ummæli Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu, um að hann styddi umrætt vopnahlé en að Pútín gerði það ekki og hvað hann hefði um það að segja.

„Ég held þeir styðji það báðir. Þeir vilja báðir semja en kunna það ekki.“

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í morgun að Úkraínumenn hefðu ekki gert eina árás á orkuinnviði í Rússlandi síðan Trump lýsti yfir samkomulaginu sem var ekki fyrir um tveimur dögum síðan. Hann sagði Rússa hafa gert fjölda slíkra árása í Úkraínu.

Það sagði hann í yfirlýsingu um mjög umfangsmiklar árásir Rússa á Úkraínu undanfarna daga.

Trump var spurður að því í gær hvernig hann ætlaði að fá Pútín til að standa við þetta vopnahlé.

„Það sem ég held að sé að gerast, er að hann vill semja. Við þurfum bara að fá Selenskí til að vilja semja,“ sagði Trump. Því næst spurði hann hvaðan blaðamaðurinn væri og sá svaraði Póllandi.

„Nú, forsetinn ykkar er góður forseti. Þú veist að ég lýsti yfir stuðningi við hann og hann vann, þú veist það er það ekki?“

Blaðamaðurinn pólski hélt áfram og spurði Trump hvar hvernig hann sæi vilja til samninga hjá Pútín á meðan hann héldi árásum á Úkraínu áfram.

„Ég held að þeir muni semja. Í rauninni held ég að Pútín vilji semja meira en Selenskí,“ sagði Trump og gekk áfram.

Undanfarna daga hefur Trump verið verulega gagnrýninn á Selenskí og þá að miklu leyti vegna árása Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Sala olíuafurða er helsta tekjulind rússneska ríkisins og Úkraínumenn segja hana notaða til að fjármagna stríðsrekstur Pútíns í Úkraínu.

Trump vill meina að hátt verð á díselolíu sé þessum árásum að kenna en ekki stríði Bandaríkjanna gegn Íran. Það háa verð þykir líklegt til að koma verulega niður á Repúblikönum í þingkosningunum í næsta mánuði og vill Trump lækka verðið.

Sérfræðingar segja það ekki rétt hjá forsetanum. Stríðið gegn Íran spili mun stærri rullu í hærra verði en árásir Úkraínumanna í Rússlandi.

Trump því yfir á dögunum að ráðamenn í bæði Rússlandi og Úkraínu hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði í hvoru landi fyrir sig. Ekkert slíkt samkomulag lá fyrir en þetta er í annað sinn sem Trump segir ósatt um að samið hafi verið um vopnahlé af þessu tagi.

Hótuðu að hætta aðstoð

Þegar Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hætti hann mestöllum stuðningi við Úkraínu en bandamenn Úkraínu í Evrópu hafa keypt flugskeyti í loftvarnarkerfi Úkraínumanna frá Bandaríkjunum síðan þá. Það hefur meðal annars verið gert í gegnum NATO-verkefni sem kallast PURL og hefur Ísland tekið þátt í því.

Bandaríkjamenn hafa sömuleiðis deilt upplýsingum um undirbúning Rússa fyrir árásir í Úkraínu, hreyfingar rússneskra sveita á víglínunni og möguleg skotmörk í Rússlandi, svo eitthvað sé nefnt, með Úkraínumönnum.

Um helgina tilkynntu bandarískir embættismenn kollegum sínum í Úkraínu að þessu yrði mögulega hætt, ef Úkraínumenn hættu ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Var það eftir að Trump opinberaði að Bandaríkin ætluðu að kaupa díselolíu frá Rússlandi.

Eins og frægt er hét Trump því að binda enda á stríðið á fyrsta degi eftir að hann sneri aftur í Hvíta húsið eða jafnvel fyrr. Það hefur lítið sem ekkert gengið hjá honum.

Trump hefur ítrekað hótað því að beita Rússa miklum refsiaðgerðum til að reyna að þvinga þá að samningaborðinu en hefur hingað til ekki staðið við stóru orðin. Í viðræðum við Rússa og Úkraínumenn hefur Trump og hans fólk lagt mesta áherslu á að fá Úkraínumenn til að verða við kröfum Rússa.

Sjá einnig: Í­huga að fara nýja leið og bjóða Rússum við­skipta­samninga

Ráðamenn í Rússlandi hafa, að virðist, ekkert komið til móts við Bandaríkjamenn í þessum viðræðum eða dregið úr kröfum sínum.

Selenskí var spurður út í þetta í viðtali á dögunum. Af hverju Trump og aðrir eins og Elon Musk, kenndu honum um þetta stríð en ekki Pútín.

Forsetinn sagði það vera vegna þess að þeir fyndu enga leið til að stöðva Pútín. Það væri mun erfiðara fyrir þá að þrýsta á Pútín en hann. Það væri auðveldara að kenna Úkraínumönnum um.

Trúir ekki að Rússar og Kínverjar aðstoði klerkastjórnina

Trump saðist einnig í gær þeirrar skoðunar að Kínverjar og Rússar séu ekki að aðstoða klerkastjórnina í Íran í stríðinu gegn Bandaríkjunum. Ef svo sé, skipti það ekki miklu máli en Trump segist enga trú hafa á því. Það er þrátt fyrir að Bandaríkjamenn hafi beitt refsiaðgerðum vegna þessarar aðstoðar og að ráðherrar hafi talað um það opinberlega.

„Þeir hafa of miklu að tapa og við myndum vita af því. Við myndum vita það mjög hratt,“ skrifaði Trump á Truth social í gærkvöldi.

Í færslunni kvartaði hann yfir ummælum um þessa meintu aðstoð og sagði þau koma frá öfgafullum vinstri-fávitum og geðsjúklingum.

Færsla Trumps á Truth Social.

Rússar og Kínverjar hafa um árabil verið meðal nánustu bandamanna klerkastjórnarinnar í Íran og hafa bæði ríki lengi verið sökuð um að aðstoða klerkastjórnina við að komast hjá refsiaðgerðum.

Frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran í lok febrúar hafa ríkin þó ekki komið Írönum til aðstoðar með opinberum hætti. Rússar segjast hafa sent mannúðaraðstoð til Íran en hafa ekki opinberað neina annars konar aðstoð.

Ráðamenn í Kína hafa, eins og fram kemur í grein AFP-fréttaveitunnar, gagnrýnt árásirnar og lokun Hormússunds

Fregnir hafa ítrekað borist af því að ráðamenn í Rússlandi og Kína hafi komið klerkastjórninni til aðstoðar. Meðal annars hafi Íranir fengið upplýsingar um möguleg skotmörk fyrir eldflauga- og drónaárásir frá bandamönnum sínum og hergögn.

Þá hafa borist fregnir af því að Íranir hafi fengið sendingar af svokölluðum MANPADS-kerfum frá Kína en það eru loftvarnarkerfi sem geta verið borin á öxlinni.

Hegseth sagði frá aðstoðinni

Í gegnum árin hefur Trump ítrekað talað máli einræðisherra eins og Xi Jinping og Vladimírs Pútín. Hann hefur lýst báðum sem „hlutlausum“ í stríði hans gegn Íran.

Í síðasta mánuði blés hann á fregnir af því að Íranir hefðu fengið gervihnattamyndir frá Kína sem hefðu hjálpað þeim að gera árás á bandaríska herstöð í júní. Þrír bandarískir hermenn féllu í árásinni.

Það er þrátt fyrir að utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hafi beitt þrjú kínversk gervihnattafyrirtæki refsiaðgerðum í maí vegna aðstoðar handa klerkastjórninni í Íran, eins og tíundað er í grein Newsweek þar sem farið er yfir það hvernig Rússar og Kínverjar hafa aðstoðað klerkastjórnina og það að yfirvöld í Bandaríkjunum viti af því.

Þar er meðal annars vísað til þess að Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, hafi sagt það á fundi með öldungadeildarþingmönnum í sumar. Einnig er vísað í ummæli íranskra embættismanna um aðstoð frá þessum ríkjum.

#samþykktu #segi #vísir #þeir #því

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262947674d/-their-samthykktu-af-thvi-ad-eg-segi-ad-their-samthykktu-

📰 Aðrar fréttir

Jacek Belina fórst þegar Jökull ÞH 299 sökk
📅 27.11.2026 👁️ 1
Jacek Belina fórst þegar Jökull ÞH 299 sökk
Pólski maðurinn sem fórst þegar fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk á miðvikudag hét Jacek Belina, eins og RÚV greinir frá. Hann var frá Ustka í Póllandi o...
Ó­lína ráðin sem rektor á Bif­röst - Vísir
📅 27.11.2026 👁️ 1
Ó­lína ráðin sem rektor á Bif­röst - Vísir
Ólína starfaði sem prófessor og deildarforseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst frá 2022. Hún tók við sem staðgengill rektors með skömmum fyri...
Harmleikurinn á Jökli: Skipaverkfræðingur ítrekað bent á undarlega kröfu yfirvalda um sleppibúnað björgunarbáta
📅 27.11.2026 👁️ 1
Harmleikurinn á Jökli: Skipaverkfræðingur ítrekað bent á undarlega kröfu yfirvalda um sleppibúnað björgunarbáta
Þrír fórust þegar fiskiskipið Jökull sökk á miðvikudagskvöldið. Fjórtán komust lífs af. Atburðarásin var hröð eftir að lúga brotnaði á skipinu og sjór...
„Viðbrögð skólameistarans segja meira en þúsund orð“ – strákarnir á Laugum slógu í gegn
📅 27.11.2026 👁️ 1
„Viðbrögð skólameistarans segja meira en þúsund orð“ – strákarnir á Laugum slógu í gegn
Strákarnir úr Framhaldsskólanum á Laugum stigu fram sem kór í hléi Tónkvíslarinnar og sungu lagið Hafið eða fjöllin, en með heimagerðum texta um skóla...
Sitt sýndist hverjum og ekki er allt sem sýnist við fokdýra kolla í Góða hirðinum: „Þurfið ekkert að pirra ykkur á þessu frekar en þið viljið“
📅 27.11.2026 👁️ 1
Sitt sýndist hverjum og ekki er allt sem sýnist við fokdýra kolla í Góða hirðinum: „Þurfið ekkert að pirra ykkur á þessu frekar en þið viljið“
Kona sem gerði sér ferð í Góða hirðinn greinir frá því að henni hafi ofboðið hátt verðlag þar á kollum. Segist konan hafa keypt slíkan koll á 500 kr. ...
Rýna þurfi vel í af hverju björgunar­bátar nýttust ekki - Vísir
📅 27.11.2026 👁️ 1
Rýna þurfi vel í af hverju björgunar­bátar nýttust ekki - Vísir
Fram hefur komið í máli þeirra skipverja Jökuls ÞH sem lifðu slysið af á miðvikudag að áhöfnin hafi ekki getað nýtt sér björgunarbáta skipsins. Annar ...
'We have no interest in hearing from Huw Edwards', Downing Street says
📅 27.11.2026 👁️ 1
'We have no interest in hearing from Huw Edwards', Downing Street says
There has been a backlash against new interviews with the disgraced former BBC News presenter.
Hakkarar komust í kerfi flug­hersins - Vísir
📅 27.11.2026 👁️ 1
Hakkarar komust í kerfi flug­hersins - Vísir
Samkvæmt heimildum Reuters er nú unnið að því að styrkja varnir kerfisins og bæta þann skaða sem árásin hefur valdið. Heimildarmenn fréttaveitunnar gá...
Sálfræðitímum lögreglumanna fækkar úr 10 í 6 um áramót
📅 27.11.2026 👁️ 2
Sálfræðitímum lögreglumanna fækkar úr 10 í 6 um áramót
Frá áramótum fá lögreglumenn greidda sex sálfræðitíma á ári í stað tíu frá embætti Ríkislögreglustjóra. Formaður Landssambands lögreglumanna gagnrýnir...
Sí­fellt meiri að­sókn á Læknavaktina - Vísir
📅 27.11.2026 👁️ 1
Sí­fellt meiri að­sókn á Læknavaktina - Vísir
Haukur Heiðar Hauksson, yfirlæknir hjá Læknavaktinni, segir að starfsfólk hafi tekið eftir auknu álagi vegna öndunarfærasýkinga. „Það er sífellt meiri...
Hver rændi ömmu rokk? - Tónlistargagnrýni Andreu Jóns vindur upp á sig
📅 27.11.2026 👁️ 1
Hver rændi ömmu rokk? - Tónlistargagnrýni Andreu Jóns vindur upp á sig
Vitringarnir 3 eru á leið á svið í Hörpu þriðju jólin í röð með sýningu sína, sem er sambland af söng, skemmtun og óborganlegu gríni þremenninganna Ey...
„Þetta var einmitt augnablikið sem margir biðu eftir að sjá“
📅 27.11.2026 👁️ 1
„Þetta var einmitt augnablikið sem margir biðu eftir að sjá“
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst og fyrrverandi alþingismaður, tjáir sig um sjóslysið á miðvikudag þegar línuveiðiskipið Jöku...
Ásgeir Elí öskraði þegar hann var kominn hálfa leið upp í þyrluna: „Djöfull er ég glaður að sjá ykkur“
📅 27.11.2026 👁️ 1
Ásgeir Elí öskraði þegar hann var kominn hálfa leið upp í þyrluna: „Djöfull er ég glaður að sjá ykkur“
„Klukkutíma áður en þyrlan kom var ég búinn að halda utan um einn háseta sem er skjálfandi. Ég er endalaust að segja „þú ert nagli, þú getur þetta, hj...
Slysavarnafélagið Landsbjörg: „Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi“
📅 27.11.2026 👁️ 1
Slysavarnafélagið Landsbjörg: „Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi“
Slysavarnafélagið Landsbjörg segir mikilvægt að hlúa hvert að öðru og standa með þeim sem eiga um sárt að binda. Í færslu sem félagið birtir í nafni a...
Meintur kynferðisbrotamaður vildi leikjatölvurnar sínar til baka
📅 27.11.2026 👁️ 1
Meintur kynferðisbrotamaður vildi leikjatölvurnar sínar til baka
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að lögreglu sé heimilt að halda áfram haldlagningu á farsímum og leikjatölvum í eigu manns...
Gengið verði á á­ætlaðan af­gang til að fjár­magna þyrlu - Vísir
📅 27.11.2026 👁️ 1
Gengið verði á á­ætlaðan af­gang til að fjár­magna þyrlu - Vísir
Á ríkisstjórnarfundi í morgun var samþykkt einróma að flýta fyrirætlunum um að fá fjórðu björgunarþyrluna hingað til lands og til Landhelgisgæslunnar....
„Enn ein til­raunin til að þagga niður í okkur – mér líður þannig“ - Vísir
📅 27.11.2026 👁️ 2
„Enn ein til­raunin til að þagga niður í okkur – mér líður þannig“ - Vísir
„Já, ljótu börnin fá ekki,“ segir Arnþrúður í spjalli við Vísi. Og hún hlær við. Hún segir að þau hjá Útvarpi Sögu hafi treyst á að fá styrk og þetta ...
„Sjómenn standa saman eins og klettar“
📅 27.11.2026 👁️ 2
„Sjómenn standa saman eins og klettar“
Öryggismenning meðal íslenskra sjómanna hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum áratugum. Það þykir alls ekkert feimnismál lengur að ræða um eða æfa ö...
Five earthquakes recorded in the Canary Islands overnight
📅 27.11.2026 👁️ 1
Five earthquakes recorded in the Canary Islands overnight
Five earthquakes were recorded off the western coast of El Hierro during the early hours of this morning (Friday), according to Spain's National Geogr...
Vildi að allir fé­lagarnir yrðu hífðir á undan - Vísir
📅 27.11.2026 👁️ 1
Vildi að allir fé­lagarnir yrðu hífðir á undan - Vísir
„Þetta var alveg venjulegur dagur. Það var óveður en við höfðum séð það verra,“ segir Ásgeir þegar hann rifjar upp atburðarrás miðvikudagsins örlagarí...
Sabine Leskopf segir ummæli forstjóra Landhelgisgæslunnar þjóðrembu og karlrembu – Lilja svarar fullum hálsi
📅 27.11.2026 👁️ 1
Sabine Leskopf segir ummæli forstjóra Landhelgisgæslunnar þjóðrembu og karlrembu – Lilja svarar fullum hálsi
Sabine Leskopf segir ummæli forstjóra Landhelgisgæslunnar þjóðrembu og karlrembu – Lilja svarar fullum hálsi Fréttin27. nóvember 2026InnlentLeave a Co...
Kallar hag­tölur eigin ríkis­stjórnar falskar - Vísir
📅 27.11.2026 👁️ 1
Kallar hag­tölur eigin ríkis­stjórnar falskar - Vísir
Trump varpaði þessum ásökunum fram á samfélagsmiðli sínum í gær eftir að ráðuneytið breytti á miðvikudaginn tölfræði um hagvöxt á þriðja ársfjórðungi....
Segir hag­tölur eigin ríkis­stjórnar falskar - Vísir

765 migrants to be transferred from El Hierro to Tenerife and Gran Canaria
📅 27.11.2026 👁️ 2
765 migrants to be transferred from El Hierro to Tenerife and Gran Canaria
A total of 765 migrants are due to be transferred from El Hierro to Tenerife and Gran Canaria today (Friday), as authorities continue efforts to relie...
Nanna Kristín þakkar Karen og áhorfendum fyrir samfylgdina: „Takk fyrir að fíla eða ekki fíla hrátt kynlífið, klósettferðirnar, fylleríið“
📅 27.11.2026 👁️ 3
Nanna Kristín þakkar Karen og áhorfendum fyrir samfylgdina: „Takk fyrir að fíla eða ekki fíla hrátt kynlífið, klósettferðirnar, fylleríið“
Nanna Kristín Magnúsdóttir, leikkona, leikstjóri og framleiðandi sjónvarpsþáttanna Fleiri pabbahelgar!, þakkar áhorfendum fyrir að hofa á þættina. Söm...
Vilhelm Jónsson skrifar: Þjóðaröryggi á biðlista
📅 27.11.2026 👁️ 3
Vilhelm Jónsson skrifar: Þjóðaröryggi á biðlista
Þrír sjómenn hafa látið lífið. Fjórtán skipverjar og fjölskyldur þeirra þurfa að takast á við afleiðingar hörmunganna. Þegar umræðan hljóðnar og þjóðl...
Sænskur bær vill reka moskuna sína eftir að imam bauðst til að gifta giftan mann annarri konu
📅 27.11.2026 👁️ 1
Sænskur bær vill reka moskuna sína eftir að imam bauðst til að gifta giftan mann annarri konu
Bæjarráðið í Halmstad í Svíþjóð samþykkti einróma 24. nóvember að leggja til að leigusamningi við félagið sem rekur moskuna í bænum verði sagt upp. Mo...
Réðst ítrekað á lögreglumann - Iðrast gjörða sinna og hefur leitað sér hjálpar
📅 27.11.2026 👁️ 2
Réðst ítrekað á lögreglumann - Iðrast gjörða sinna og hefur leitað sér hjálpar
Karlmaður var í gær dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að ráðast ítrekað á lögreglumann við skyldustörf.Atvikin á...
Pálmi biður útgerðina að „kíkja í budduna“ – rifjar upp hvað afi hans gerði
📅 27.11.2026 👁️ 2
Pálmi biður útgerðina að „kíkja í budduna“ – rifjar upp hvað afi hans gerði
Pálmi Gestsson leikari veltir því upp hvort efnaðar útgerðir gætu lagt fé til kaupa á björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna.Í færslu á Facebook rifja...
Ökumaður fólksbifreiðar lést á Suðurstrandarvegi
📅 27.11.2026 👁️ 2
Ökumaður fólksbifreiðar lést á Suðurstrandarvegi
Einn lést í umferðarslysi á Suðurstrandarvegi í gær, ökumaður fólksbifreiðar.Kemur það fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.DV greindi frá...
Nöfn þeirra þriggja sem létust
📅 27.11.2026 👁️ 2
Nöfn þeirra þriggja sem létust
Pólski maðurinn sem fórst þegar Jökull ÞH 299 sökk úti fyrir Austurlandi á miðvikudag hét Jacek Belina. Hann var frá Ustka í Póllandi og var fæddur ár...
Ásgeir Elí öskraði þegar hann var kominn hálfa leið upp í þyrluna: „Þetta verður með mér alla mína ævi“
📅 27.11.2026 👁️ 2
Ásgeir Elí öskraði þegar hann var kominn hálfa leið upp í þyrluna: „Þetta verður með mér alla mína ævi“
„Klukkutíma áður en þyrlan kom var ég búinn að halda utan um einn háseta sem er skjálfandi. Ég er endalaust að segja „þú ert nagli, þú getur þetta, hj...
Ekki hægt að útiloka að erlent þjóðríki hafi verið að baki netárás
📅 27.11.2026 👁️ 1
Ekki hægt að útiloka að erlent þjóðríki hafi verið að baki netárás
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að ekki sé hægt að útiloka að þjóðríki hafi staðið að baki einhverjum þeirra netárása sem gerða...
Hlut­fall 18 til 24 ára í for­eldra­húsum hækkar - Vísir
📅 27.11.2026 👁️ 2
Hlut­fall 18 til 24 ára í for­eldra­húsum hækkar - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Hagstofunnar, en þeir búa á sama heimili og annað hvort eða bæði foreldrar þeirra teljast búa í foreldrahúsum. Þa...
Heimildin og Mann­líf fá 64 milljónir - Vísir
📅 27.11.2026 👁️ 2
Heimildin og Mann­líf fá 64 milljónir - Vísir
Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthl...
Út­varp Saga fær ekki styrk - Vísir

Áform um tæplega 40 vindorkuver á Íslandi – Landsnet telur aðeins hægt að tengja þrjú til fjögur á næstu 10–15 árum
📅 27.11.2026 👁️ 2
Áform um tæplega 40 vindorkuver á Íslandi – Landsnet telur aðeins hægt að tengja þrjú til fjögur á næstu 10–15 árum
Áform um tæplega 40 vindorkuver á Íslandi – Landsnet telur aðeins hægt að tengja þrjú til fjögur á næstu 10–15 árum Fréttin27. nóvember 2026Innlent, O...
Flugvirkjar hafna kjarasamningi
📅 27.11.2026 👁️ 1
Flugvirkjar hafna kjarasamningi
Flugvirkjafélag Íslands hefur fellt kjarasamning við Icelandair í atkvæðagreiðslu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.„Það eru mikil vonbri...
Fjárfestar taka 22,7 milljarða dala úr hlutabréfasjóðum – vaxandi efasemdir um arðsemi gervigreindar
📅 27.11.2026 👁️ 1
Fjárfestar taka 22,7 milljarða dala úr hlutabréfasjóðum – vaxandi efasemdir um arðsemi gervigreindar
Fjárfestar taka 22,7 milljarða dala úr hlutabréfasjóðum – vaxandi efasemdir um arðsemi gervigreindar Fréttin27. nóvember 2026Erlent, Innlent, Markaður...
Aðalsteinn nýr ritstjóri Heimildarinnar
📅 27.11.2026 👁️ 1
Aðalsteinn nýr ritstjóri Heimildarinnar
Stjórn Sameinaða útgáfufélagsins hefur ráðið Aðalstein Kjartansson ritstjóra Heimildarinnar. Í frétt á vef Heimildarinnar segir að Ingibjörg Dögg Kjar...
Frakkland komið í efnahagslægð – samdráttur meiri en áður var talið og halli ríkissjóðs eykst
📅 27.11.2026 👁️ 1
Frakkland komið í efnahagslægð – samdráttur meiri en áður var talið og halli ríkissjóðs eykst
Frakkland komið í efnahagslægð – samdráttur meiri en áður var talið og halli ríkissjóðs eykst Fréttin27. nóvember 2026Efnahagsmál, Erlent, Evrópusamba...
Einn lést í umferðarslysi á Suðurstrandarvegi í gær
📅 27.11.2026 👁️ 1
Einn lést í umferðarslysi á Suðurstrandarvegi í gær
Ökumaður fólksbíls lést þegar hann og vörubíll rákust saman á Suðurstrandarvegi síðdegis í gær. Eldur kviknaði í fólksbílnum við áreksturinn. Þetta ke...
Alvarleg tölvuárás á Reykjavíkurborg – óvissa um öryggi persónuupplýsinga borgarbúa
📅 27.11.2026 👁️ 1
Alvarleg tölvuárás á Reykjavíkurborg – óvissa um öryggi persónuupplýsinga borgarbúa
Alvarleg tölvuárás á Reykjavíkurborg – óvissa um öryggi persónuupplýsinga borgarbúa Fréttin27. nóvember 2026Innlent, Öryggismál, StjórnsýslaLeave a Co...
Fjórða þyrlan verður á Akureyri
📅 27.11.2026 👁️ 1
Fjórða þyrlan verður á Akureyri
Ríkisstjórnin ákvað að flýta því að bæta fjórðu þyrlunni við flota Landhelgisgæslunnar á fundi sínum í morgun. Hún á að vera á Akureyri. Þetta segir Þ...
Bana­slys á Suðurstrandarvegi - Vísir
📅 27.11.2026 👁️ 2
Bana­slys á Suðurstrandarvegi - Vísir
Lögreglan á Suðurnesjum staðfestir í fréttatilkynningu að um banaslys hafi verið að ræða í gær. Sá sem lést var ökumaður fólksbifreiðarinnar. Vörubifr...
Bana­slys á Suðurstrandavegi - Vísir

Flokkadrættir um fjármál í forystusveit Evrópusambandsins
📅 27.11.2026 👁️ 1
Flokkadrættir um fjármál í forystusveit Evrópusambandsins
„Við náðum ekki samkomulagi,“ var eitt af því fyrsta sem Antonio Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins sagði á blaðamannafundi í Brussel skömm...
Trump vill fá Pútín á leiðtogafund G20 – vonast eftir skjótum endalokum Úkraínustríðsins
📅 27.11.2026 👁️ 1
Trump vill fá Pútín á leiðtogafund G20 – vonast eftir skjótum endalokum Úkraínustríðsins
Trump vill fá Pútín á leiðtogafund G20 – vonast eftir skjótum endalokum Úkraínustríðsins Fréttin27. nóvember 2026InnlendarLeave a Comment Donald Trump...
Nafn pólska skip­verjans á Jökli - Vísir
📅 27.11.2026 👁️ 2
Nafn pólska skip­verjans á Jökli - Vísir
Ríkisútvarpið greinir frá nafni mannsins. Áður hafði verði greint frá því að Eggert Ellertsson, 45 ára karlmaður búsettur í Reykjavík, og Aðalsteinn S...
Aukin netógn á Íslandi – óvissustig almannavarna áfram í gildi vegna netárása
📅 27.11.2026 👁️ 1
Aukin netógn á Íslandi – óvissustig almannavarna áfram í gildi vegna netárása
Aukin netógn á Íslandi – óvissustig almannavarna áfram í gildi vegna netárása Fréttin27. nóvember 2026Innlent, ÖryggismálLeave a Comment Almannavarnir...