Leikarinn Tom Welling, sem er hvað þekktastur fyrir að fara með hlutverk ofurmennisins í þáttunum Smallville, varð fyrir því neyðarlega atviki á dögunum að bera óvart á sér kynfærin á samfélagsmiðlum. Hann birti um helgina mynd á samfélagsmiðlum til að sýna útsýnið frá hótelherbergi sínu í New York. Það sem leikarinn fattaði ekki er að í glugganum mátti sjá spegilmynd hans, en hann var kviknakinn þegar hann tók myndina.
Ofurmennið gerði neyðarleg mistök og sýndi aðeins of mikið af sjálfum sér - „Kom fyrir útsýnið“