Fyrri þáttaröðin, Pabbahelgar, var sýnd á RÚV haustið 2019, sló í gegn hjá áhorfendum og hlaut Edduverðlaunin árið 2020 sem leikið sjónvarpsefni ársins. Þættirnir fjölluðu um Karen sem þurfti að takast á við skilnað eftir að upp komst um framhjáhald eiginmanns hennar, Matta.
Þættirnir fönguðu hversdagslíf íslensku fjölskyldunnar með beittum húmor og einlægri sýn á mannleg samskipti. Nú snúa Karen og Matti aftur á skjáinn í Fleiri Pabbahelgum þar sem fimm ár eru liðin og margt hefur breyst.
Karen hefur verið einstæð og kynnst stefnumótaheiminum í gegnum Tinder, með misjöfnum árangri. Eftir að hafa eytt síðustu árum í að sinna börnunum, takast á við fyrrverandi eiginmanninn og halda öllum boltum á lofti hefur hún ákveðið að setja sjálfa sig í fyrsta sæti. Það reynist þó hægara sagt en gert.
Börnin eru orðin unglingar en þurfa enn á foreldrum sínum að halda. Karen þarf því að finna jafnvægi milli þess að vera móðir, fyrrverandi eiginkona og kona sem vill lifa lífinu á eigin forsendum. Matti hefur haldið áfram með sitt líf en er enn bundinn Karen í gegnum börnin og gömul samskiptamynstur reynast lífseig þar sem einföldustu hversdagsmál geta orðið að stórum ágreiningsefnum. Hér að neðan má sjá stiklu fyrir þáttaröðina:
Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson fara sem fyrr með hlutverk Karenar og Matta. Meðal annarra leikara eru Sólveig Guðmundsdóttir, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Sigríður, Eyrún Friðriksdóttir og Hildigunnur Þráinsdóttir.
Auk þess að fara með aðalhlutverkið þá leikstýrir Nanna Kristín þáttunum, er aðalframleiðandi þeirra og skrifar handritið ásamt Sólveigu Jónsdóttur og Erlu Skúladóttur.