Marinó G. Njálsson ráðgjafi segir að það standist ekki skoðun að hófleg hækkun launa leiði til tæplega sex prósent verðbólgu, þegar rýnt sé í tölur frá Skattinum þá hafi kaupmáttur launa lækkað síðustu tvö ár. Í ítarlegri greiningu fer Marinó yfir skýringar Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra í þættinum Sætið á Vísi. Þar sagði Ásgeir að verðbólgan hækki alltaf þegar launin hækka.
Marinó segir eitthvað annað búa að baki: „Þetta stenst enga skoðun“