Mánuður er liðinn frá þingkosningum í Svíþjóð. Andersson fékk stjórnarmyndunarumboð þar sem Jafnaðarmannaflokkur hennar hlaut flest atkvæði þótt hann hefði tapað þingstyrk.
Hvorki hefur gengið né rekið hjá Andersson. Upphafleg tilraun hennar til þess að mynda ríkisstjórn með öðrum flokkum í svonefndri rauðgrænni blokk sænskra stjórmála fór út um þúfur vegna ágreinings við Vinstriflokkinn. Henni hefur ekki tekist betur upp síðan þá.
Andersson sagði í morgun eftir fund hennar með Andreas Norlén, þingforseta, að aðstæður væru ekki til stjórnarmyndunar þó að viss árangur hefði náðst í viðræðum flokkanna. Óbrúanlegur ágreiningur væri enn til staðar.
Þar átti hún væntanlega við að Miðflokkurinn harðneitar að styðja ríkisstjórn sem Vinstriflokkurinn á sæti í. Leiðtogar Vinstriflokksins vilja ekki styðja ríkisstjórn jafnaðarmanna nema þeir fái sjálfir sæti í henni.
Á ósigurinn vísan
Norlén tilkynnti eftir fundinn í morgun að hann ætlaði að boða til atkvæðagreiðslu um eins flokks ríkisstjórn jafnaðarmanna á fimmtudag, að sögn sænska ríkisútvarpsins.
Mest er hægt að boða til slíkra atkvæðagreiðslna fjórum sinnum. Boða þarf til nýrra kosninga ef enginn ríkisstjórnarkostur fær meirihluta atkvæða.
Ekki þarf að spyrja að leikslokum því leiðtogar flokka af bæði vinstri og hægri vængnum hafa þegar sagst ætla að greiða atkvæði gegn Andersson. Hún efast ekki um eigin ósigur heldur.
„Ég mun tapa,“ sagði hún í morgun.
Í framhaldi atkvæðagreiðslunnar segist Norlén ætla ræða við fulltrúa annarra flokka um næstu skref.