Samkeppniseftirlitið framkvæmdi á föstudag húsleit hjá Ölgerðinni. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefur undanfarna mánuði skoðað viðskiptahætti Ölgerðarinnar og í þætti kvöldsins verður ljósi varpað á meint samkeppnislagabrot fyrirtækisins.
Árni Hafstað, eigandi Gæðings brugghúss, er einn viðmælenda í þættinum. Hann segir nær ómögulegt að koma vörum á markað, vegna viðskiptahátta Ölgerðarinnar.
„Ég hef oft rekið mig á það að þegar ég fer og reyni að selja mína vöru á bari eða veitingastaði að veitingamanninum þykir varan spennandi. En svo þegar við kannski hittumst daginn eftir þá er eins og að fæturnir hafi kólnað hjá veitingamanninum og hann hefur farið að skoða sína stöðu. Og áttar sig á því að hann er með samning við einhvern aðila sem hann er að versla við. Og í samningnum eru svo ákvæði sem hindra aðgengi annarra að þessum markaði eða þessum bar.“