Mæðgurnar, Katrín Middleton og Charlotte prinsessa, komu samferðafólki sínu á óvart þegar þær tóku sér far með neðanjarðarlestinni, sem oft er kölluð Túban (e. The Tube), í London um helgina.Wales-prinsessan hélt í höndina á ellefu ára gamalli dóttur sinni þegar þær ferðuðust um London með Elizabeth-línunni, sem nefnd er eftir Elísabetu drottningu heitinni, á laugardag ásamt almennum borgarbúum. Talið er að þetta hafi verið í fyrsta sinn sem Charlotte ferðaðist með hinu fræga almenningssamgöngukerfi borgarinnar.
Komu samferðafólki sínu á óvart með ferð í Túbunni