Sjávarsýn, eignarhaldsfélag Bjarna Ármannssonar, er orðið eigandi að meira en tíu prósenta hlut í Skaga hf. eftir að hafa aukið hlutafjáreign sína í gær.
Skaginn á VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og Íslensk verðbréf.
Fyrir viðskiptin í gær átti Bjarni 9,99% hlut í Skaga hf. en eftir viðskiptin á hann 10,56% hlut. Hann er eftir sem áður stærsti einstaki hluthafinn. Næstir eru Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Skel fjárfestingafélag, Gildi - lífeyrissjóður og Lífeyrissjóður verzlunarmanna.
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur veitt Bjarna heimild til að eiga allt að 20% óbeinan virkan eignarhlut í eftirlitsskyldum dótturfélögum Skaga.