Fyrsti óveðurshvellur vetrarins er í uppsiglingu en eins og kunnugt er hefur Veðurstofa Íslands gefið út gular og appelsínugular viðvaranir fyrir stóran hluta landsins á morgun.Búast má við stormi, mikilli úrkomu og jafnvel stórhríð þegar mjög djúp og kröpp lægð gengur yfir landið. Verst verður veðrið á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra þar sem ekkert ferðaveður verður annað kvöld og fram á nótt.
Fyrsti alvöru hvellur vetrarins framundan – Þetta þurfa landsmenn að hafa í huga