Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum - Vísir

Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum - Vísir

Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum - Vísir

Eftir að Nóbelsnefndin tilkynnti á fimmtudaginn að Anne Carson hefði hlotið bókmenntaverðlaunin þaut menningarblaðamaður Vísis vestur á Ægisíðu í von um að ná tali af verðlaunahafanum en kom að tómu húsi. Carson hafði mínútum fyrr rætt við fréttastofu Rúv í vindinum í vesturbænum og síðan flúið með eiginmanni sínum, myndlistarmanninum Robert Currie, úr símasambandi.

Anne Carson og Robert Currie hafa búið í hinu sögufræga húsi Lambhóli síðan 2022.Magnús Jochum

Ritstjóri Vísis gafst þó ekki upp, bankaði upp á hjá hjónunum um kvöldið og kríaði út viðtal daginn eftir. Upp úr hádegi á föstudag fór undirritaður því öðru sinni niður að Ægisíðu þar sem hjónin búa í hinu sögufræga húsi Lambhóli alveg við sjóinn. Robert kom til dyra, tók vel á móti blaðamanni og spurði hvort hann væri með sínar þrjár spurningar klárar. Forsenda fyrir viðtalinu hafði verið að það yrði stutt.

Þaðan fylgdi hann blaðamanni inn í heimilislega íbúð þeirra hjóna þar sem Anne sat í eldhúsinu við fartölvu og reyndi að svara þeim þúsundum tölvupósta sem henni höfðu borist síðasta sólarhringinn. Þau hjónin sögðust sem betur fer ekki vera með samfélagsmiðla.

Síðan var sest niður við dúkað borð í borðstofunni sem snýr út að sjónum. Hófst þá samtal við viðkunnalegu hjónin, sem teygði sig reyndar í hálftíma, um listina, dvölina á Íslandi og hvað Nóbelsverðlaunaskáldið er að lesa þessa dagana. Húmor og einlægni einkenndi tilsvör hjónanna.

Íbúðin er merkt þessu krúttlega handskrifaða skilti.

Flúðu í Elliðaárdalinn

Á fimmtudaginn lýsti Carson því yfir við fjölmiðla að það væri henni hulin ráðgáta að hún skyldi hafa fengið Nóbelinn, tilfinningin væri klikkuð. Þegar Carson ræddi við blaðamann degi síðar var hún ekki enn búin að melta tíðindin almennilega, þau væru enn jafn klikkuð og skrítin og þegar þau bárust fyrst.

„Þau verða það örugglega áfram fyrir þig,“ segir Robert um tíðindin við Anne.

Anne finnst hún ekki eiga Nóbelsverðlaunin skilið en það sé mikill heiður að vera í hópi með Halldóri Laxness. Verðlaunaféð, rúmar 130 milljónir íslenskra króna, ætli hún sér að gefa til góðra málefna.

Sjá einnig: Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð

Raunar virðist Anne ekki hafa mikið um verðlaunin að segja þannig að blaðamaður beinir spurningunni annað.

Hvert fóruð þið til að komast undan áreitinu á fimmtudaginn?

„Við förum alltaf í Elliðaárdalinn,“ segir Anne. 

„Við fórum í göngutúr, það er frábær staður,“ bætir Robert við.

„Fengum að hanga með svölu krökkunum“

Þó að Anne Carson sé þekkt nafn í bókmenntakreðsum þá er hún ekki sérlega þekkt meðal Íslendinga. Þá vissu sennilega fæstir sem lásu fréttirnar á fimmtudaginn að Nóbelsverðlaunahafinn væri íslenskur ríkisborgari.

Hvers vegna eruð þið hér á Íslandi?

„Við komum 2008 fyrir listaverkefni, residensíu í Stykkishólmi, og okkur líkaði við fólkið. Við fengum að taka þátt í öðrum verkefnum svo við héldum áfram að koma hingað aftur,“ segir Anne.

Anne Carson er átjánda konan, þriðji Kanadamaðurinn og annar íslenski ríkisborgarinn til að hljóta Nóbelsverðlaun í bókmenntum.Vísir/Magnús Jochum

„Eins og Ragnar Kjartansson orðaði það, við fengum að hanga með svölu krökkunum,“ skýtur Robert inn.

Þau hefðu komið til landsins reglulega eftir fyrstu heimsóknina og heillast af staðnum.

„Síðan keyptum við íbúð í þessu húsi svo það var auðvelt fyrir okkur að koma hingað,“ segir Anne en þau gerðu 2022, sama ár og þau urðu bæði íslenskir ríkisborgarar.

„Verum hreinskilin, þetta er eins svalt hús og þau geta orðið,“ segir Robert. 

„Þetta er einstök staðsetning og vindurinn er líka einstakur hérna,“ bætir Anne við.

Lambhóll er tignarlegt hús sem var reist í tveimur áföngum, sá fyrri um 1920 og sá seinni á sjöunda áratugnum.Vísir/Sigurjón

Einmanalegt að tala ekki tungumálið

Þau hjónin segja veruna á Íslandi hafa sína kosti og galla. Fólkið sé almennilegt en það hafi áhrif á upplifunina að tala ekki íslensku og skilja ekki málið.

„Það er einmanalegt. Við tölum ekki íslensku og þú getur ekki lært málið með því að æfa þig í verslunum eða í sundlauginni því allir tala ensku. Það er ákveðin gremja sem fylgir því. Maður upplifir sig dálítið utangarðs í menningunni þegar maður getur ekki lesið málið eða skilið það sem er um að vera,“ segir Anne.

„Allir reyna samt að láta manni líða velkomnum,“ skýtur Robert inn í.

„Þau gera það, þannig þetta er smá vafasamur ávinningur. En ég er að reyna að læra íslensku svo ég verði á endanum, einn daginn, betri,“ segir Anne.

Hvernig æfirðu þig?

„Ég les barnabækur og ýmislegt annað, kennslubækur,“ segir Anne sem ætlar að skrá sig í áfanga í íslensku sem öðru máli í Háskóla Íslands á næsta ári. 

„En þetta er flókið tungumál eins og þú veist.“

Ekkert úthugsað hjá skáldinu

Anne fæddist í Toronto árið 1950, ólst upp í ýmsum kanadískum smábæjum þegar hún var yngri og las mikið sem barn. Fimmtán ára gömul uppgötvaði hún forngríska skáldið Saffó sem var kveikjan að ástríðu hennar fyrir forngrísku og leiddi hana á endanum í nám í forngrískum bókmenntum. 

„Ég var sílesandi þegar ég var yngri. Mig langaði aldrei að verða rithöfundur en ég las mjög mikið. Síðan lærði ég grísku og las á forngrísku og núna les ég á íslensku,“ segir Anne um inngöngu sína í bókmenntirnar.

Carson hefur gefið út sextán skáldsögur á ferli sínum og þýtt sjö verk úr forngrísku.HÍ/Kristinn Ingvarsson

Carson varð doktor í forngrískum bókmenntum frá Toronto-háskóla árið 1981 og hefur kennt þær í fjóra áratugi víða um Bandaríkin. Doktorsritgerð hennar, Odi et Amo Ergo Sum eða Ég elska og ég hata, þess vegna er ég, var það fyrsta sem kom út eftir hana og endurvann hún hana fyrir bókmenntaritið Eros the Bittersweet (1986). Þá þegar var hún byrjuð að skrifa ljóð en fyrsta verkið sem birtist eftir hana var innblásið af Grikkjunum.

„Ég var að hugsa um þetta í gær, ég hafði gleymt því, það fyrsta sem birtist eftir mig var í ljóðatímaritinu Invisible City, sem er ekki lengur til í dag, og það fjallaði um forngrískan höfund,“ segir Anne um ljóðið „Some Greeks: Fragments of Greek Papyri“.

„Ég bjó hann til, skáldaði ævisögu hans og ýmis verk hans sem höfðu öll glatast. Ég sendi þetta á þau eins og þetta væri alvöru manneskja og alvöru textabrot. Ég var svo stressuð yfir því að þau myndu uppgötva að þetta væri allt skáldað. En þau gerðu það aldrei.“

Þannig að þetta hefur fylgt þér frá byrjun, þessi blanda...

„Staðreynda og skáldskapar,“ segir Anne til að klára setninguna.

Anne Carson hlaut Vigdísarverðlaunin árið 2023 fyrir störf sín í þágu tungumála, menningar og þýðingararfs.HÍ/Kristinn Ingvarsson

Þú hrærir saman prósa, ljóðum og forngrísku hefðinni í skrifunum, kemur þetta til þín eða er þetta úthugsað?

„Ég held að ekkert sem ég geri sé úthugsað, ég er ekki með hlutina mjög á hreinu,“ segir Anne.

„Nema feluleikurinn, hann er úthugsaður,“ bætir Robert við.

„Já, feluleikurinn í skóginum,“ segir Anne og undirritaður er ekki viss hvort hún sé að vísa í Elliðaárdalinn eða frumskóg bókmenntanna.

„Þetta er meira og minna gert í ógáti þar sem ég rekst utan í hluti. Hér er hugmynd, af hverju geri ég þetta ekki? Hér er önnur hugmynd,“ segir Anne um aðferðafræði sína.

„Hluti af þessu tengist því hvernig þú skipuleggur skrifborðin þín,“ bætir Robert við.

„Mögulega, mér finnst gott að hafa ólíkar bækur, staðsettar af handahófi, á borðinu. Síðan nota ég þær eftir geðþótta, flakka milli skrifa og lesturs og nota hvað sem kemur út úr því,“ segir Anne.

Anne og Robert hafa unnið náið saman að ýmsum verkefnum.Vísir/Magnús Jochum

„Af því þú ert með þrjú skrifborð þá þarftu ekki að ganga frá hlutunum. Þú ert með skrifborð fyrir þýðingarnar, skrifborð fyrir listina og skrifborð fyrir skrifin. Það þýðir að frekar en að þú þurfir að ganga frá hlutunum þá er það allt þarna, handahófskennt og opið,“ segir Robert.

„Ég teikna mjög mikið og það er sérstaklega gott að skilja teikningarnar eftir á borðinu. Ef þú gengur frá þeim finnst þér of mikið maus að ná aftur í þær og ferð að gera eitthvað annað,“ segir Anne.

Hún blandi öllu saman og sé ekkert sérlega fókúseruð þegar kemur að listsköpuninni.

„Ég held ég muni alltaf starfa svona. En ef ég finn eitthvað þá get ég farið dýpra og dvalið þar, það veltur auðvitað á hugmyndinni.“

„Þetta var leið sem ég fetaði óvart“

Anne segist ekki vita hvers vegna hún skrifi og raunar hafi hún óvart byrjað að skrifa út frá teikningum sínum.

„Ég byrjaði að skrifa fyrir slysni því ég var vön að teikna og setti titla á teikningarnar. Svo líkaði fólki við titlana þannig að ég byrjaði að lengja þá. Þeir urðu litlir fyrirlestrar og það varð að skrifum. Þetta var leið sem ég fetaði óvart, gleðilegt slys,“ segir hún.

„Mér finnst teikningarnar enn skemmtilegar en fæstum öðrum finnst það,“ bætir hún við.

Nokkrar af teikningunum sem Carson sýndi í Kling&Bang árið 2021.Kling&Bang

Anne hefur haldið sýningar á teikningum sínum gegnum árin og tók þátt í samsýningunni Dýpsta sæla og sorgin þunga með Ragnari Kjartanssyni, Höllu Birgisdóttur og Margréti Dúadóttur Landmark í Kling&Bang árið 2021.

„Ég varð óvart rithöfundur og núna verð ég að halda því áfram, ég get ekki hætt núna,“ segir Anne.

Þú hefur tileinkað líf þitt forngrísku, lært og kennt tungumálið, þýtt verk og aðlagað þau í verkum þínum. Hvað gerir tungumálið svona lífsseigt?

„Það er besta tungumálið, held ég. Ég veit ekki af hverju en mér finnst það,“ segir Anne. „Tungumálið er best og Hómer er sá besti innan forngrískunnar.“

Hómer er alltaf móðins.

Því næst beinist samtalið að næstu verkefnum Anne.

„Ég er ekki að vinna að því núna en við erum að setja upp óperuna Herakles Mad, sem byggir á þýðingu eftir mig, í Basel næsta vor,“ segir Anne og Robert bætir við: „Með Ragnari Kjartanssyni og Bryce Dessner úr hljómsveitinni The National.“

„Svo erum við að reyna að aðlaga Autobiography of Red, sem ég skrifaði fyrir mörgum árum, að sviðinu með breska leikaranum Ben Whishaw. Við höfum ekki viljað aðlaga það áður,“ segir Anne.

Á kafi í Stendhal og mælir með Proust og Taylor

Hvað hefurðu verið að lesa þessa dagana?

„The Charterhouse of Parma eftir Stendhal. Hún er sex hundruð síður og uppfull af ítalskri pólitík 18. aldar. Hún er þung á ákveðinn hátt, ásetningurinn er ekki þungur því hún er léttlynd og dálítið írónísk en það er erfitt að fylgja sögunni. Hvað hef ég verið að lesa fleira?“ segir Anne.

„Daphne,“ svarar Robert.

„Daphne du Maurier, sem er nokkuð léttúðugur skáldskapur, og svo Knausgaard, safn af esseyjum hans sem ég fann í bókabúð,“ bætir Anne við.

Anne hefur verið að lesa Karl Ove Knausgaard, Daphne du Maurier og Stendhal.Getty/Wiki

Ekki sjálfsævisögulegu skrifin hans?

„Nei, það er fyrir ofan minn skilning. Ég vil ekki vita svona mikið um nokkra manneskju,“ segir hún.

Ertu ekki gefin fyrir sjálfsögur (e. auto-fiction)?

„Nei, ég veit ekki hvað það er, sjálfsögur. Allur skáldskapur virðist vera sjálfsævisögulegur á einhvern hátt, þú dregur skrifin úr þínu eigin lífi. Allavega, ég er hrifnari af esseyjunum hans,“ segir Anne.

Reyndirðu að lesa stóra ævisögubálkinn hans?

„Ég las helminginn af fyrsta bindinu en svo var hann að skræla appelsínu eða eitthvað í níu blaðsíður og ég hætti,“ segir Anne.

Anne er mikið fyrir Proust.

„En þú ert hrifin af Proust, hann hefði skrælt appelsínu í níu blaðsíður og þér hefði fundist það allt í lagi,“ skýtur Robert inn í.

„Nei, hann hefði skrælt appelsínu á þúsund mögulega vegu. Það er allt önnur tegund af orðgnótt,“ segir hún.

Eru einhverjar bækur sem þú mælir með?

„Á ensku væru það verk Elizabeth Taylor, ég veit að það var leikkona sem hét Elizabeth Taylor en þetta er enski skáldsagnahöfundurinn Elizabeth Taylor sem er frábær. Og svo Proust, hann er alltaf þess virði,“ segir Anne.

Boxar, syndir og fer í spinning

„Ég boxa,“ segir Anne þegar blaðamaður spyr hvernig hún verji tímanum þegar hún er ekki að skrifa eða lesa bækur.

Boxar?

„Já, ég boxa í Mjölni. Við vorum þar áðan, ég fer í boxtíma á mánudögum og föstudögum,“ segir hún.

„Þú byrjaðir í boxinu út af Parkinsons-greiningunni,“ segir Robert.

„Ég er með Parkinsons-sjúkdóm og boxið er góð meðferð við honum vegna þessarar blöndu af heila- og líkamsæfingum. Ég byrjaði á því fyrir nokkrum árum í Bandaríkjunum og svo hélt ég því áfram hér með vinum í Mjölni,“ segir Anne.

Anne boxar tvisvar í viku.X

Hvenær greindistu með Parkinsons-sjúkdóm?

„Fyrir sirka þremur árum, það er eins og það er. En það er hægt að létta eða minnka sjúkdómseinkennin með ýmsum æfingum. Ég boxa og fer í sund í Vesturbæjarlaug og spinning-tíma í hinni líkamsræktinni, World Class,“ segir Anne.

„Ég veit ekki hvað við gerum fleira, við förum oft á rúntinn og keyrum um,“ bætir hún við.

„Við heimsækjum vini og borðum kvöldverði með vinum. Ástæðan fyrir því að við erum hérna er fólkið og við virðumst vera stöðugt að hitta fólk,“ segir Robert.

Eru þetta þá listamenn?

„Mestmegnis listamenn, ég held að við þekkjum alla listamennina í Reykjavík,“ segir Anne og Robert bætir við: „Á ákveðnum aldri.“

Geta ekki vanist birtunni á sumrin

„Við höfum ekkert ferðast. Í hvert skipti sem við komum þá segjumst við ætla að keyra um landið,“ segir Anne þegar blaðamaður spyr hvort þau hjónin hafi eitthvað ferðast um Ísland.

„Málið er að við komum vanalega hingað í október og erum fram í maí. Þá er svo erfitt að keyra um landið. Einhvern daginn komum við hingað að sumri til og ferðumst þá,“ segir Robert.

Þegar þau hjónin eru ekki hérlendis þá búa þau í húsi sínu í Ann Arbor í Michigan-ríki Bandaríkjanna.

Anne hefur búið og starfað víða í Bandaríkjunum og Kanada, þar á meðal í New York, Atlanta, Montreal og Ann Arbor.Vísir/Magnús Jochum

„Við reyndum að vera hérna að sumri til en það er alltof bjart. Ég get ekki vanist því meðan myrkrið hefur engin áhrif á mig. Maður er vanur þessu ef maður elst upp hérna en fyrir okkur er þetta algjört sjokk,“ segir Anne.

Þið tvö hafið unnið mikið saman, hvernig er ykkar samstarf?

„Við vinnum mest saman með því að rúnta um í bílnum,“ segir Anne.

„Þú skalt gefa honum svarið sem þér datt í hug í Kaliforníu um árið,“ bætir Robert við.

„Við erum með ólíkan hugsanagang. Ég þarf að skjóta einni ör beint á markið, hann skýtur örvum allan daginn og hittir aldrei á markið. Þannig vinnum við saman,“ segir Anne að lokum.

Þá var hálftími liðinn, spurningarnar orðnar þó nokkuð fleiri en þrjár og kominn tími á að blaðamaður kveddi. Dagskráin var þétt hjá þeim hjónum þann daginn og þau þurftu smá hvíld þar til næsti gestur kæmi, kanadíski sendiherrann á Íslandi.

#boxar #halda #sjúkdómnum #skefjum #til


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262946376d/boxar-til-ad-halda-sjuk-domnum-i-skefjum

📰 Aðrar fréttir

Inga Lind selur miðborgarperluna
📅 13.10.2026 👁️ 0
Inga Lind selur miðborgarperluna
Inga Lind Karlsdóttir, ein eigenda Skot Productions, hefur sett einbýlishús sitt við Barónsstíg 16 í miðborginni á sölu. Eignin er 155,1 fm að stærð b...
Fyrsti alvöru hvellur vetrarins framundan – Þetta þurfa landsmenn að hafa í huga
📅 13.10.2026 👁️ 0
Fyrsti alvöru hvellur vetrarins framundan – Þetta þurfa landsmenn að hafa í huga
Fyrsti óveðurshvellur vetrarins er í uppsiglingu en eins og kunnugt er hefur Veðurstofa Íslands gefið út gular og appelsínugular viðvaranir fyrir stór...
Emergency calls from botched Christa Pike execution released to US media
📅 13.10.2026 👁️ 0
Emergency calls from botched Christa Pike execution released to US media
A series of calls, obtained by the Associated Press, reveal emergency services were delayed in reaching Pike.
Há­skólarnir verði betur tengdir með breyttri strætó­leið - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 0
Há­skólarnir verði betur tengdir með breyttri strætó­leið - Vísir
Leið 8 mun samkvæmt tilkynningu framvegis hafa viðkomu við Háskóla Íslands, Lækjartorg og Skúlagötu auk Háskólans í Reykjavík og Gömlu Hringbrautar lí...
Bjarni yfir 10 prósentin í Skaga
📅 13.10.2026 👁️ 0
Bjarni yfir 10 prósentin í Skaga
Sjávarsýn, eignarhaldsfélag Bjarna Ármannssonar, er orðið eigandi að meira en tíu prósenta hlut í Skaga hf. eftir að hafa aukið hlutafjáreign sína í g...
Biðja fólk um að huga að veðri og flýta eða seinka ferðalögum
📅 13.10.2026 👁️ 0
Biðja fólk um að huga að veðri og flýta eða seinka ferðalögum
Lögregluembættin á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra hafa sent frá sér tilmæli til vegfarenda fyrir óveðrið sem er að vænta á morgun. Appelsínugular v...
Þurftu að kyrr­setja flug­vél vegna veggjalúsa - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 0
Þurftu að kyrr­setja flug­vél vegna veggjalúsa - Vísir
Veggjalýsnar fundust fremst á almennu farrými vélarinnar í flugi Qantas þann 9. október en þetta kemur fram í frétt Guardian um málið. Taka þurfti vél...
Canary Islands Football Nights: Following AFCON's November qualifiers across time zones
📅 13.10.2026 👁️ 1
Canary Islands Football Nights: Following AFCON's November qualifiers across time zones
November's AFCON qualifiers fall after the Canary Islands return to winter time, keeping the islands an hour behind mainland Spain. A fixture advertis...
Lognið fyrir storminn
📅 13.10.2026 👁️ 2
Lognið fyrir storminn
Landsmenn geta átt von á hægum vindi en nokkurri rigningu í dag. Íbúar á Norður- og Austurlandi þurfa þó að bíða fram yfir hádegi áður en blotnar eitt...
Lög­reglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Lög­reglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða - Vísir
Gular og appelsínugular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir morgundaginn, en gert er ráð fyrir komu mjög djúprar lægðar sem á að ganga yfir lan...
Úkraínskt skip sökk í drónaárás
📅 13.10.2026 👁️ 2
Úkraínskt skip sökk í drónaárás
Úkraínskt skip sökk í drónaárás í morgun þegar árásir voru gerða á tvö úkraínsk skip í Svartahafi.Rumen Radev forsætisráðherra Búlgaríu greindi frá þe...
New bus routes in Adeje carry over 10,000 passengers in just five weeks
📅 13.10.2026 👁️ 1
New bus routes in Adeje carry over 10,000 passengers in just five weeks
Two new municipal bus routes in Adeje have recorded more than 10,000 passenger journeys in their first five weeks of operation, with the service conne...
Mótmælanda hent út af Trump samkomu meðan forsetinn kallaði hann feitan og sagði hann þurfa í megrun
📅 13.10.2026 👁️ 1
Mótmælanda hent út af Trump samkomu meðan forsetinn kallaði hann feitan og sagði hann þurfa í megrun
Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði mótmælanda feitan og sagði hann þurfa að fara í megrun þegar lögreglumenn fylgdu viðkomandi út af samkomu forse...
Hafa gert á­rásir á sex orku­mann­virki eftir yfir­lýsingu Trump - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 1
Hafa gert á­rásir á sex orku­mann­virki eftir yfir­lýsingu Trump - Vísir
Að sögn Selenskí hafa bensínstöðvar, orkuinnviðir og fleiri mannvirki orðið fyrir árásum og alls hafa 30 slasast. Í viðtali við Fox News segir hann að...
TUESDAY WEATHER: Sunshine and temperatures up to 28°C in the Canary Islands today
📅 13.10.2026 👁️ 1
TUESDAY WEATHER: Sunshine and temperatures up to 28°C in the Canary Islands today
The Canary Islands can look forward to another day of pleasantly warm October temperatures today, Tuesday, with sunny intervals across much of the arc...
Carney hvetur til samstöðu viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta
📅 13.10.2026 👁️ 1
Carney hvetur til samstöðu viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta
Alberta er fjórða stærsta fylki Kanada og þar búa um fimm milljónir íbúa. Skoðanakannanir benda til þess að aðeins um fjórðungur íbúa Alberta vilji fu...
Russia's offensive ability is broken, Kyiv's former top general tells BBC
📅 13.10.2026 👁️ 3
Russia's offensive ability is broken, Kyiv's former top general tells BBC
In his first interview since being forced from his post, Gen Syrskyi speaks about Ukraine's future in the war.
Segja árásir á gagnaver hafa þaggað niður í rússneskum áróðursbottum
📅 13.10.2026 👁️ 3
Segja árásir á gagnaver hafa þaggað niður í rússneskum áróðursbottum
Nokkrir bandamenn Úkraínu og netnotendur segja að snarlega hafi dregið úr rússneskum áróðri og upplýsingaóreiðu á netinu. Ástæðan er sögð nýlegar árás...
BBC's Orla Guerin travels with Yemen's southern national security forces through desert battlefield
📅 13.10.2026 👁️ 1
BBC's Orla Guerin travels with Yemen's southern national security forces through desert battlefield
Orla Guerin travelled through Yemen, with forces loyal to its internationally recognised government, to a remote desert battlefield where Houthi rebel...
Karlmaður lést við fall úr rússíbana
📅 13.10.2026 👁️ 4
Karlmaður lést við fall úr rússíbana
Karlmaður lést og nokkrir slösuðust eftir rússíbanaslys í skemmtigarði Six Flags í Georgíu í Bandaríkjunum í gær.CNN segir að maðurinn hafi látist þeg...
Hútar vara Bandaríkin við að veita Sádi-Aröbum hernaðarlegan stuðning
📅 13.10.2026 👁️ 4
Hútar vara Bandaríkin við að veita Sádi-Aröbum hernaðarlegan stuðning
Hútar hafa varað Bandaríkjastjórn við því að blanda sér inn í stríðsátökin milli Húta og Sádi-Arabíu. Mohammed Al Bukhaiti, háttsettur maður í skæruli...
UK growth upgraded but energy prices and rates to bite in 2027
📅 13.10.2026 👁️ 4
UK growth upgraded but energy prices and rates to bite in 2027
The IMF report comes as final preparations are being made to the first Budget under Prime Minister Andy Burham.
UK growth forecast upgraded but energy prices and rates to hit in 2027
📅 13.10.2026 👁️ 1
UK growth forecast upgraded but energy prices and rates to hit in 2027
The prediction from the IMF comes as final preparations are being made to the first Budget under Prime Minister Andy Burham.
Why the Prime Minister wants to talk about Brexit again
📅 13.10.2026 👁️ 4
Why the Prime Minister wants to talk about Brexit again
For the first time since the UK left the EU, we have a prime minister who will "unflinchingly" debate Brexit, says the BBC's political editor Chris Ma...
Hundreds more prisoners to be freed in second phase of early release scheme
📅 13.10.2026 👁️ 4
Hundreds more prisoners to be freed in second phase of early release scheme
Second tranche of prisoners will include those serving up to two and a half years for crimes.
Leggur til að Ísland skapi sér sérstöðu á sviði gervigreindar
📅 13.10.2026 👁️ 5
Leggur til að Ísland skapi sér sérstöðu á sviði gervigreindar
Halla Tómasdóttir forseti Íslands hefur verið í alþjóðlegri nefnd um gervigreind síðan í sumar. Hún segir markmið nefndarinnar að ræða hvernig hægt sé...
Jarþrúður Ásmundsdóttir nýr formaður Jafnréttissjóðs
📅 13.10.2026 👁️ 3
Jarþrúður Ásmundsdóttir nýr formaður Jafnréttissjóðs
Jarþrúður Ásmundsdóttir verður formaður Jafnréttissjóðs Íslands að skipan Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Á vef Stjórnarráðsins segir ...
Hvetur nöfnu sína til að fletta Gest­gjafanum - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 5
Hvetur nöfnu sína til að fletta Gest­gjafanum - Vísir
Tilefni innsendu greinarinnar er viðtal þar sem rætt var við formann Blaðamannafélags Íslands í einum þátta blaðamannsins Jakobs Bjarnars á Vísi sem b...
„Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
„Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ - Vísir
Tilefni innsendu greinarinnar er viðtal þar sem rætt var við formann Blaðamannafélags Íslands í einum þátta blaðamannsins Jakobs Bjarnars á Vísi sem b...
Publicly owned rail is popular. But is it making the trains run on time?
📅 12.10.2026 👁️ 4
Publicly owned rail is popular. But is it making the trains run on time?
Meeting travellers' expectations could be challenging, experts warn.
One dead, several others hurt on Six Flags rollercoaster in Georgia
📅 12.10.2026 👁️ 4
One dead, several others hurt on Six Flags rollercoaster in Georgia
Aerial footage at the park after the incident shows a stuck rollercoaster with riders being helped off.
Heating oil customers face tough winter despite shake-up promise
📅 12.10.2026 👁️ 4
Heating oil customers face tough winter despite shake-up promise
Heating oil customers facing soaring bills are promised better regulation of the sector by the government.
Spæjari, klámstjarna og þingkona - Ótrúlegur ferill konunnar sem elskar að vera ögrandi
📅 12.10.2026 👁️ 4
Spæjari, klámstjarna og þingkona - Ótrúlegur ferill konunnar sem elskar að vera ögrandi
Þegar hin ungverska Ilona Staller gekk upp að altarinu aðeins tvítug að aldri árið 1971 lýsti presturinn henni sem sorgmæddustu brúði sem hann hefði n...
Breaking Bad-stjarna látin aðeins 34 ára að aldri
📅 12.10.2026 👁️ 4
Breaking Bad-stjarna látin aðeins 34 ára að aldri
Leikarinn RJ Mitte er látinn, 34 ára að aldri, en hann sló í gegn í verðlaunaþáttunum Breaking Bad þar sem hann fór með hlutverk Walter 'Flynn' White ...
Er bókun 35 tækniútfærsla eða varðar hún við stjórnarskrána?
📅 12.10.2026 👁️ 4
Er bókun 35 tækniútfærsla eða varðar hún við stjórnarskrána?
Tekist er á um bókun 35 á Alþingi þessa dagana og hefur mikið verið rætt hvort hún sé í tæknileg útfærsla eða hvort hún varði við stjórnskrá Íslands. ...
Á­kveðið á­lag sem maður sé undir án þess að fatta það - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Á­kveðið á­lag sem maður sé undir án þess að fatta það - Vísir
Var þetta meðal þess sem snert var á í dag þar sem Rósa var gestur í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni. Hún sagðist fyrst hafa kynnst tækninni í heimsókn...
Sonur Walter White er látinn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Sonur Walter White er látinn - Vísir
Kemur þetta meðal annars fram í umfjöllun TMZ um andlátið en RJ lést í heimabæ sínum, Brownsville, í Texas-fylki í Bandaríkjunum. Þá standi rannsókn á...
RJ Mitte er látinn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
RJ Mitte er látinn - Vísir
Kemur þetta meðal annars fram í umfjöllun TMZ um andlátið en RJ lést í heimabæ sínum, Brownsville, í Texas-fylki í Bandaríkjunum. Þá standi rannsókn á...
Telur ólíklegt að vopnahlé Trumps hafi verið raunverulegt
📅 12.10.2026 👁️ 4
Telur ólíklegt að vopnahlé Trumps hafi verið raunverulegt
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir ólíklegt að vopnahlé á milli Rússa og Úkraínumanna, sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti u...
„Kjarnorkuvopnaógn meiri en frá tímum kalda stríðsins“
📅 12.10.2026 👁️ 4
„Kjarnorkuvopnaógn meiri en frá tímum kalda stríðsins“
Kjarnorkuógn hefur ekki verið meiri síðan á hátindi kalda stríðsins, að sögn Izumi Nakamitsu, framkvæmdastjóra afvopnunarmála hjá Sameinuðu þjóðunum. ...
Breaking Bad actor RJ Mitte dies aged 34
📅 12.10.2026 👁️ 4
Breaking Bad actor RJ Mitte dies aged 34
Mitte, who lived with cerebral palsy, drew on his own experience for his role in the Emmy-winning drama series.
RJ Mitte: Breaking Bad actor dies aged 34
📅 12.10.2026 👁️ 0
RJ Mitte: Breaking Bad actor dies aged 34
Mitte, who lived with cerebral palsy, starred as Walter White Jr in the Emmy-winning drama series.
Lætur nöfnu sína heyra það vegna ummæla hennar um Gestgjafann - „Tímasetningin gerir þetta verra“
📅 12.10.2026 👁️ 4
Lætur nöfnu sína heyra það vegna ummæla hennar um Gestgjafann - „Tímasetningin gerir þetta verra“
Staða hlaðvarpa á Íslandi hefur mikið verið til umræðu undanfarið eftir að Fjölmiðlanefnd skoraði á nokkur vinsælustu hlaðvörp landsins að skrá sig fo...
Legally Blonde-stjarna hand­tekin sökuð um að hafa bitið flug­freyju - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Legally Blonde-stjarna hand­tekin sökuð um að hafa bitið flug­freyju - Vísir
Er það bandaríski miðillinn TMZ sem greinir frá en þar segir að Selma Blair hafi verið um borð í vél flugfélagsins Delta Airlines á leið til John F. K...
Uppsagnir í hverjum mánuði
📅 12.10.2026 👁️ 4
Uppsagnir í hverjum mánuði
Verulega hefur hægt á í byggingariðnaði undanfarið og íbúðum í byggingu fækkað líkt og Spegillinn hefur fjallað um. Hátt í 1.900 nýjar íbúðir eru tilb...
Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánar­tíðni sjúk­linga - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánar­tíðni sjúk­linga - Vísir
Helga Rósa Másdóttir formaður FÍS skrifar meðal annars um það í greininni að undirmannaðar deildir geti haft mikið að segja um öryggi sjúklinga og afd...
Why Moscow is staying tight-lipped on Trump's energy ceasefire
📅 12.10.2026 👁️ 4
Why Moscow is staying tight-lipped on Trump's energy ceasefire
While Ukraine's Volodymyr Zelensky suggests he would sign up to a ceasefire on energy infrastructure, Russia has said little.
Türk segir Alþjóðlega sakamáladómstólinn standa aðför Bandaríkjanna af sér
📅 12.10.2026 👁️ 4
Türk segir Alþjóðlega sakamáladómstólinn standa aðför Bandaríkjanna af sér
Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna segir aðför Bandaríkjastjórnar að Alþjóðlega sakamáladómstólnum algjörlega óásættanlega. Hann telur slíka aðför ...
Leikkona gekk berserksgang í flugi - Beit flugfreyju og reyndi að opna vélina
📅 12.10.2026 👁️ 5
Leikkona gekk berserksgang í flugi - Beit flugfreyju og reyndi að opna vélina
Leikkonan Selma Blair var handtekin eftir að hafa gengið berserksgang í flugi. Frá þessu greinir TMZ sem hefur það eftir vitnum og hljóðupptökum sem m...
Skiptar skoðanir um nýja Appelsínið: „Hvílík snilld sem þetta er!” - „Greinilega komið beint frá djöflinum“
📅 12.10.2026 👁️ 5
Skiptar skoðanir um nýja Appelsínið: „Hvílík snilld sem þetta er!” - „Greinilega komið beint frá djöflinum“
Egils Appelsín hefur fylgt þjóðinni í meira en sjötíu ár, í mesta skammdeginu er því blandað við Malt eða Jólaöl til að búa til hátíðardrykk þjóðarinn...