Úkraínskt skip sökk í drónaárás í morgun þegar árásir voru gerða á tvö úkraínsk skip í Svartahafi.
Rumen Radev forsætisráðherra Búlgaríu greindi frá þessu á samfélagsmiðlum. Skipin voru úti fyrir ströndum Búlgaríu. Þrír drónar réðust á annað skipið og stuttu síðar var árás gerð á hitt skipið sem sökk. Hann ætlar að kalla rússneska sendiherrann í Búlgaríu á fund vegna árásanna sem hann segir óásættanlegar.
Önnur drónaárás varð á skip um 130 km frá ströndinni 6. október.