Gular og appelsínugular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir morgundaginn, en gert er ráð fyrir komu mjög djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið, fyrst á suður- og Suðausturlandi þar sem gular viðvaranir taka gildi klukkan sex í morgunsárið, ef spár ganga eftir.
Lægðin færir sig síðan til vesturs og gert ráð fyrir 15-25 metrum á sekúndu og snörpum vindhviðum við Faxaflóann og Breiðafjörðinn þegar líður á morguninn og talsverðri úrkomu. Ferðaveður verður varasamt og lausamunir geta fokið.
Versta spáin er fyrir norðanverða Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra þar sem gera á norðan stórhríð, með hvassviðri, lélegu skyggni og snjó á vegum, sem sagt engu ferðaveðri.
Þar taka appelsínugular viðvaranir gildi síðdegis á morgun og gilda inn í nóttina.