Nokkrir bandamenn Úkraínu og netnotendur segja að snarlega hafi dregið úr rússneskum áróðri og upplýsingaóreiðu á netinu. Ástæðan er sögð nýlegar árásir Úkraínuhers á rússnesk gagnaver.
Úkraínuher gerði þrjár árásir á gagnaver rússneska fyrirtækisins Yandex í síðustu viku. Fyrirtækið hefur verið kallað rússneska Google en það rekur vinsælustu vefleitarvél Rússlands, auk matar- og leigubílapöntunarsmáforrita sem notuð eru af tugum milljóna manna.
Margir netnotendur segja að dregið hafi úr efni á samfélagsmiðlum sem sé til stuðnings Donald Trump Bandaríkjaforseta, Rússlandi eða þýska þjóðernisflokknum AfD sem er hliðhollur Rússum. Þeir segja að árásirnar hafi slökkt á rússneskum áróðursbottum, sem eru notaðir til að dreifa efni í lélegum gæðum, gjarnan áróðri eða upplýsingaóreiðu.
Segir andrými á samfélagsmiðlum hafa aukist
Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti sagði á öryggisráðstefnunni í Varsjá í gær að andrými hefði aukist á samfélagsmiðlum eftir árásir Úkraínuhers á gagnaverin nýverið. Þá sagði rússneski stórmeistarinn í skák, Garry Kasparov, í færslu á X að rússnesku bottatröllunum á samfélagsmiðlareikningum hans hefði fækkað allrækilega.
Samkvæmt Cloudflare Radar, sem fylgist með og greinir netumferð um allan heim, féll netumferð um Yandex um 35 prósent eftir árás á Sasovo-gagnamiðstöð Yandex. Netumferðin féll síðan um 99% eftir árásina á gagnaver í Vladimir-héraði, samanborið við netumferðina viku áður.
Tröll og bottar enn í fullu fjöri
Sérfræðingar í rússneskum netáróðri segja þó að það sé of snemmt að segja til um orsök og afleiðingar í þessu sambandi. Nikola Tulechki, sérfræðingur í eftirliti með upplýsingaóreiðu, sagði í viðtali við fréttaveitu AFP að það væru enn ekki neinar sannanir fyrir því að árásirnar hefðu þaggað niður í tröllaverksmiðjum.
Tulechki sagði upplýsingarnar frá Cloudflare mæla sjálfvirkar heimsóknir frá netkerfum Yandex á vefsíður en ekki frá bottum á samfélagsmiðla.
Samtökin Antibot4Navalny draga einnig túlkun Cloudflare í efa og segja að bottar og tröllaverksmiðjur Kremlarstjórnar hafi ekki þagnað eftir árásirnar á gangaverin.