Stjórn Strætó hefur ákveðið að breyta leiðinni sem vagn 8 fer til að hann tengi háskólana í Vatnsmýri og verði tenging við miðbæ Reykjavíkur.
Leið 8 hefur hingað til aðeins gengið frá Háskólanum í Reykjavík að Gömlu Hringbraut. Henni var komið á til að leysa vanda sem skapaðist af því að vagnar tepptust oft í umferð á Nauthólsvegi. Þá hætti leið 5 að ganga að Háskólanum í Reykjavík og stöðvaðist í staðinn við Gömlu Hringbraut. 8 tók svo við lokakaflanum að Háskólanum í Reykjavík.
Frá og með fimmtudeginum gengur leið 8 frá endastöð við Skúlagötu, fram hjá Hörpu og um Lækjargötu og Suðurgötu að Háskóla Íslands. Þaðan fer hún um Gömlu Hringbraut að Háskólanum í Reykjavík. Í framtíðinni stendur til að hún fari yfir Fossvogsbrú að Hamraborg.
Strætisvagnar ganga á leiðinni á tíu mínútna fresti á háannatímum að morgni og síðdegis.
Í tilkynningu frá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins segir að breytingin sé til þess hugsuð að bæta tengingar milli háskólanna og stórra vinnustaða í Vatnsmýri. Hún tekur líka mið af fyrirhugaðri borgarlínuleið.