Vona að á­greiningur liti ekki þing ASÍ - Vísir

Vona að á­greiningur liti ekki þing ASÍ - Vísir

Vona að á­greiningur liti ekki þing ASÍ - Vísir

Tveir hafa tilkynnt um framboð til forseta ASÍ en frestur er til föstudags, þegar kosningu lýkur. Annar er Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur og samfélagsmiðla- og markaðssérfræðingur sem hefur starfað fyrir ASÍ, og hinn Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU, stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum. Þeir voru til viðtals í Bítinu á Bylgjunni um ágreining formanna VR og Eflingar, vinnumarkaðsmódelið og forsetakjörið.

„Þetta leggst mjög vel í mig. Mér finnst hérna efnistökin á þinginu vera áhugaverð og mjög svona viðeigandi inn í þessa óvissu sem blasir við vinnumarkaðnum,“ segir Arnaldur um stemninguna fyrir þinginu sem hefst á morgun. Það sé gott að móta stefnu sambandsins en hann sé meðvitaður um að það hafi gustað svolítið um.

„Auðvitað hefur það ekki farið fram hjá neinum að það hefur gustað um og endurskoðun á kjarasamningi síðan 2024 sem gildir út febrúar 2028 stóð yfir alveg þangað til 8. október. Það var auðvitað mikið í fjölmiðlum og mjög ánægjulegt að það hafi náðst að lenda því,“ segir Georg.

Þeir segja gott á milli sín og að það sé ekki hatrömm barátta um forsetastólinn.

„Ég hef stundum talað um að það sé hálfgerð svona Vatíkan-páfastemning þarna. Þetta er mjög lokað þetta þing,“ segir Arnaldur.

Það séu tæplega 300 þingfulltrúar sem hafi atkvæðisrétt og kosningabaráttan sé ekki hefðbundin heldur sé hún meira í samtali við þingfulltrúana, félögin og starfsfólk.

Georg tekur undir það og segist hafa verið í sambandi við fjölda formanna og hafa óskað eftir því að koma kynningu á framfæri, hverju hann standi fyrir og reynslu sinni.

„Ég er búinn að vera í kjarabaráttu og réttindabaráttu launafólks í nú um 40 ára skeið. Ég byrjaði í iðnnemahreyfingunni og var formaður Iðnnemasambandsins á sínum tíma. Ég fékk félagsmálabakteríuna í skákinni þar á undan en svo aftur verkalýðsbaráttuna fékk ég við það að vera í að læra og nema sem prentari. Það sem ég byggi í raun og veru mitt framboð á er í raun og veru bara reynslan sem ég hef öðlast á þessum tíma og þekking, og auðvitað þá hvatningu sem ég hef fengið frá félögum mínum til þess að bjóða mig fram. Það hefur náttúrulega verið alveg gríðarlega mikilvægt veganesti á þessari leið að bjóða sig fram til forseta.“

Miklu meira sem sameinar en sundrar

Spurður hvort hann telji sig geta lægt öldurnar innan ASÍ segir Georg að hann hafi unnið á þessum vettvangi lengi og verið farsæll í að ná niðurstöðu með ólíkum hópum.

„Þannig að ég held að það sé í raun og veru að minnsta kosti það sem ég vil leggja á mig til þess að reyna að koma þannig á. En ég vil nú ítreka það líka að það er miklu meira sem sameinar hópana heldur en skilur þá að, þannig að þetta er ekki eilíf barátta um að menn séu ósammála.“

Arnaldur var áður starfsmaður ASÍ og segist þekkja þokkalega vel til þar.

„Ég hef verið í mjög góðu sambandi við bæði starfsfólk og formenn félaganna og hef bara fundið fyrir mjög góðum stuðningi úr því baklandi þar sem fólk sér hlutina mjög svipuðum augum og ég. Ég tala fyrir róttækum og stórhuga breytingum á starfsemi Alþýðusambandsins og ég held að þó að þar sé mjög margt gott gert þá megi virkilega gefa í. Ég hef talað fyrir því að ASÍ eigi að vera miklu stærri og sýnilegri hagsmunagæsluaðili fyrir launafólk almennt,“ segir Arnaldur.

ASÍ sé í raun eini hagsmunagæsluaðili launafólks gegn öllum hinum sérhagsmunaaðilunum.

„Þarna þurfum við að spýta verulega í. Þetta þarf líka að gerast í góðu samtali við félögin. Það er eitthvað samtal sem ég tel að hafi verið vanrækt og það var alltaf mín tilfinning, auðvitað líka þegar ég var starfsmaður Alþýðusambandsins.“

Arnaldur segir að í sinni kosningabaráttu hafi hann reynt að vera í sambandi við öll félögin og farið yfir þeirra sýn og framhaldið hjá ASÍ. Hann segir stórtækar breytingar fram undan á vinnumarkaði. Það sé bæði verið að þrengja að hreyfingunni og svo sé aðför að verkfallsrétti með auknum valdheimildum ríkissáttasemjara.

„Síðan erum við líka að horfa á óprúttna atvinnurekendur sneiða fram hjá verkalýðsfélögum og stéttarfélögum með gerviverktöku og í gegnum app og þá einhvern veginn heitir það að það sé löglegt og fínt. Þarna myndi ég vilja sjá Alþýðusambandið taka miklu meira frumkvæði einhvern veginn og koma böndum yfir þessa óreiðu. Við sjáum þetta hvernig þetta er að koma inn í gegnum bara í löndunum í kringum okkur og það er engin ástæða til þess að ætla að þetta verði einhvern veginn öðruvísi hér,“ segir Arnaldur.

Spurður hvort hann sé til í breytingar á vinnumarkaðsmódelinu eins og til dæmis Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hefur kallað eftir segir Arnaldur að það sé alltaf að taka breytingum en að þau verði að stjórna ferðinni þó svo að það sé alltaf eitthvað samtal.

„Það verður það auðvitað alltaf að einhverju leyti en hérna, við eigum að vera með frumkvæði en ekki viðbragð í þessu.“ 

Arnaldur

Georg segir verkalýðshreyfinguna í grunninn grasrótarhreyfingu 44 aðildarfélaga. Á þinginu séu 290 fulltrúar þeirra auk fulltrúa ASÍ-UNG sem hafa atkvæðisrétt, málfrelsi og tillögurétt á þinginu.

„Þannig að það er út frá þeirri stefnu sem að ég vil leggja áherslu á að við vinnum,“ segir hann og að hans mati eigi ekki að koma „ofan frá með róttækar breytingar“.

Hann segir vinnumarkaðsmódelið alltaf í þróun og það sé eilíf barátta í sjálfu sér sem þurfi að bregðast við á hverjum tíma.

„Það er alveg rétt að það er sótt að módelinu. Þannig að þegar er verið að ræða breytingar og þær eiga eitthvað að vera í takt við tímann þá er það ekkert alltaf til hins betra fyrir launafólk,“ segir Georg.

Verði að tryggja aðkomu stjórnvalda

Spurður um klofning innan ASÍ og stéttaskiptinguna sem Solveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur talað um segir Georg að hann vilji frekar horfa til þess hvað þau eigi sameiginlegt heldur en það sem skilur.

„Ég horfi ekki á það þannig að innan ASÍ sé slíkur munur á milli stétta og jafnvel innan einstakra félaga. Þá ertu kannski með meiri mun heldur en akkúrat þvert á hreyfinguna. Ég hef verið að stýra félagi sem hefur verið með iðnaðarmenn, háskólafólk og verkafólk. Ég er búinn að vera formaður í yfir 20 ár og þetta er allt samræmanlegt í samningum sem við höfum verið að gera. En ég held að það sé einmitt það sem við ættum að horfa til, að það séu fleiri aðilar í samfélaginu sem hafa hag af því að við séum sundruð.“

Hann segir mörg mál þar sem séu sameiginlegir fletir og það sé til dæmis í þríhliða samningamódeli þar sem stjórnvöldum er komið að samningaborðinu til að tryggja að það sem sé samið um fari ekki viðstöðulaust út úr vasanum hinum megin.

Arnaldur tekur undir og segir að hann vilji líta til sögunnar. ASÍ sé stofnað í kringum slíkar deilur. Það hafi verið mörg ólík félög sem hafi verið of auðvelt að reka fleyg á milli og nýta sér ágreining þeirra á milli. Fólk hafi áttað sig á því og stofnað þennan samráðsvettvang.

„Að við ætlum ekki að læra af þeirri sögu finnst mér með ólíkindum og að við ætlum að láta þennan ágreining eyðileggja fyrir okkur þessa sameiginlegu hagsmunabaráttu,“ segir Arnaldur.

Vill tala fyrir sáttum

Hann segist tala fyrir sáttum og það sé grunnhugmynd hreyfingarinnar.

„Það er grunnhugmynd hreyfingarinnar. Það er alltaf ágreiningur og það er náttúrulega eldurinn sem knýr vélina í hreyfingunni en við erum líka bara með félagslegt starf og leiðir til þess að leysa slíkan ágreining og þannig á að standa að þeim málum og annað er ekki bara til sóma.“

Arnaldur segir óþægilegt að ágreiningur Sólveigar Önnu Jónsdóttur og Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, sé svo mikið í dagsljósinu og hann segist ekki telja það neinum til góðs.

Ekki íhaldsmaður þó það sé íhaldssemi í orðum hans

Spurður hvort munurinn á þeim tveimur felist aðallega í því að Georg sé íhaldssamari í sínum aðferðum svarar hann því að þó svo að það geti falið íhaldssemi í orðum hans þá sé hann ekki íhaldsmaður.

„Verkalýðsbaráttan er náttúrulega vinstribarátta, alveg hreinar línur í því en ég myndi segja að ég vil taka það áfram sem vel er gert, vinna að breytingum á því sem menn vilja breyta og það með samtali, samvinnu og samstöðu.“

Georg

Arnaldur segir að þegar hann tali um róttækar breytingar sé hann aðallega að tala um að uppfæra baráttu hreyfingarinnar.

„Við erum pínu föst í einhverjum veruleika sem er 20 ára gamall og þurfum að einhvern veginn að stíga inn í þann nútíma sem blasir við okkur,“ segir hann og að baráttan ætti að hans mati að vera sýnilegri.

Spurður hvort hér þurfi að skapa traust eins og sé á öðrum Norðurlöndum, eins og oft er vísað til í umræðu um breytingar á vinnumarkaðsmódelinu, segir Georg að hans mati sé ekki alveg augljóst að það gangi svo vel þar.

„Ef Svíþjóð er tekin sem dæmi þá hafa verið alveg gríðarlega erfið ár þar og félagar okkar, til dæmis úr iðnaðarmannastétt, hafa staðfest það að laun hafa frekar lækkað heldur en hækkað að raungildi á síðustu tíu árum,“ segir hann og að í Finnlandi sé hægri stjórn sem sé að reyna að skerða réttindi.

Það séu atriði sem skilja á milli Norðurlanda og Íslands og þá séu réttindi launafólks ríkari í kjarasamningum hér en úti vegna þess að þar hafi þau verið byggð meira í gegnum samfélagsleg réttindi þegnanna og með sósíaldemókratískum flokkum sem hafa verið við stjórnvölinn lengi og hafa mikil tengsl við hreyfinguna líka.

Þar sé þó veikleikinn líka þegar stjórnvöld taka við sem ekki kæra sig um téð réttindi.

„Þá eru þau felld niður án nokkurrar aðkomu verkalýðshreyfingarinnar. Það er mjög sláandi. Þannig að við þurfum alveg að vera vakandi fyrir þessu. Þetta eru alveg teikn á lofti um að menn hafi viljað rýra réttindin. En með þessu fyrirkomulagi að vera með þetta meira í kjarasamningum, öryggisnetið, þá getum við allavega staðið betur vörð um það sjálf.“

Hann segir að að þessu leyti sé staða launafólks betri á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum en það sé ekkert sjálfgefið og það skipti máli hvernig hreyfingin hagar sér og hvernig hún notar sinn kraft.

Arnaldur segir þennan samanburð sérkennilegan að einhverju leyti því fyrirkomulagið sé öðruvísi uppbyggt bæði hvað varðar verkalýðshreyfinguna og samtök atvinnurekenda.

Atkvæðagreiðslunni lýkur á föstudag en þingið hefst á morgun. Enn er frestur fyrir aðra til að bjóða sig fram. Breytingar hafa verið gerðar á þinginu í ár líkt og í fyrra að fyrsti dagur þingsins er opinn öðrum.

Opna þingið að hluta

Georg vonar að það verði hægt að vinna á þinginu út frá málefnum og að ágreiningur sem hafi verið vegna endurskoðunar kjarasamninga hafi ekki of mikil áhrif á málefnavinnuna.

„Reynslan sýnir að ef menn eru í málefnavinnunni þá eru menn miklu meira samstíga yfirleitt. Það er sjaldan að þær komi alveg gjörólíkar tillögunum sem koma frá miðstjórn í grunninn eða efnisuppleggið að þingið fjallar um það og það er oft mikil samstaða um það,“ segir Georg.

„Þingið er náttúrulega í rauninni æðsta vald Alþýðusambandsins og ákveðið þar, ákvarðar þar stefnu Alþýðusambandsins til tveggja ára. Þetta er bara formföst samkoma með 110 ára sögu og 110 ára reynslu af því og við skulum bara vona að fólk fari ekki að hleypa sér inn í það til að reyna einhvern veginn að skemma það. Það held ég að væri engum til gagns,“ segir Arnaldur.

#ekki #liti #vona #ágreiningur #þing


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262947545d/vona-ad-agreiningur-liti-ekki-thing-asi

📰 Aðrar fréttir

Le Pen spáð er sigri í frönsku forsetakosningunum
📅 13.10.2026 👁️ 0
Le Pen spáð er sigri í frönsku forsetakosningunum
Le Pen spáð er sigri í frönsku forsetakosningunum Fréttin13. október 2026Erlent, KosningarLeave a Comment Samkvæmt nýrri skoðanakönnun er franski hægr...
Spá minni hagvexti og þrálátu atvinnuleysi
📅 13.10.2026 👁️ 2
Spá minni hagvexti og þrálátu atvinnuleysi
Atvinnuleysi eykst og verður næstum sex prósent á næsta ári á sama tíma og hagvöxtur verður bara rétt rúmlega eitt prósent, ef hagspá Alþýðusambands Í...
Komu samferðafólki sínu á óvart með ferð í Túbunni
📅 13.10.2026 👁️ 1
Komu samferðafólki sínu á óvart með ferð í Túbunni
Mæðgurnar, Katrín Middleton og Charlotte prinsessa, komu samferðafólki sínu á óvart þegar þær tóku sér far með neðanjarðarlestinni, sem oft er kölluð ...
Þetta er ástæða æðiskasts Blair á sunnudag að sögn lögmanna - Á yfir höfði sér 2-7 ára fangelsi
📅 13.10.2026 👁️ 1
Þetta er ástæða æðiskasts Blair á sunnudag að sögn lögmanna - Á yfir höfði sér 2-7 ára fangelsi
Leikkonan Selma Blair var handtekin í gær eftir að hafa gengið berserksgang í flugi. TMZ greindi frá og hafði eftir vitnum og hljóðupptökum sem miðlin...
Stórslys hjá Tom Cruise: Nýja myndin stefnir í sögulegt tap
📅 13.10.2026 👁️ 1
Stórslys hjá Tom Cruise: Nýja myndin stefnir í sögulegt tap
Nýjasta kvikmynd stórleikarans Tom Cruise, Digger, gæti orðið eitt mesta fjárhagslega flopp í sögu Hollywood þegar tekið er tillit til framleiðslukost...
Andersson mistókst í annarri tilraun að mynda stjórn
📅 13.10.2026 👁️ 2
Andersson mistókst í annarri tilraun að mynda stjórn
Ekki eru forsendur eins og staðan er núna til að mynda ríkisstjórn sem hefur nægan stuðning á þingi. Þetta sagði Magdalena Andersson leiðtogi Jafnaðar...
Már varar við óæskilegum afleiðingum leigubremsunnar – Bendir á víti til varnaðar
📅 13.10.2026 👁️ 1
Már varar við óæskilegum afleiðingum leigubremsunnar – Bendir á víti til varnaðar
Már Wolfgang Mixa, hagfræðingur og lektor við Háskóla Íslands, varar við því að fyrirhuguð leigubremsa yfirvalda geti haft óæskilegar afleiðingar ef o...
Lagaákvæði gegn réttindum hinsegin fólks felld úr gildi
📅 13.10.2026 👁️ 2
Lagaákvæði gegn réttindum hinsegin fólks felld úr gildi
Þingið í Ungverjalandi samþykkti í morgun að fjarlægja lagaákvæði gegn hinsegin fólki í sérstökum „barnaverndarlögum“ sem samþykkt voru árið 2021. Þet...
Poundland in rescue talks as owners seek buyer
📅 13.10.2026 👁️ 2
Poundland in rescue talks as owners seek buyer
The leadership team is attempting a buyout, but a union has warned the retailer could fall into administration instead.
Óvissa um vopnahlé eykur óróa á orkumörkuðum
📅 13.10.2026 👁️ 0
Óvissa um vopnahlé eykur óróa á orkumörkuðum
Óvissa um vopnahlé eykur óróa á orkumörkuðum Árásir Húta á Sádi-Arabíu ýttu undir áhyggjur af olíu­fram­boði, en óvissa um meint vopna­hlé milli Rúss­...
Metallica skýtur föstum skotum á tónlistamenn sem predika um pólitík á tónleikum sínum
📅 13.10.2026 👁️ 1
Metallica skýtur föstum skotum á tónlistamenn sem predika um pólitík á tónleikum sínum
James Hetfield, söngvari og gítarleikari Metallica, skaut á skemmtikrafta sem nota tónleika til að hafa áhrif á skoðanir áhorfenda þegar hljómsveitin ...
Þing­kona segist fórnar­lamb pólitískra ógnana Trump eftir hús­leit - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 1
Þing­kona segist fórnar­lamb pólitískra ógnana Trump eftir hús­leit - Vísir
Útsendarar rannsóknararms heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna gerðu húsleit á heimili Ilhan Omar, fulltrúadeildarþingmanns demókrata frá Minnesota, í W...
Tjaldaði á um­ferðar­eyju eftir að hafa tapað í fantasy - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 1
Tjaldaði á um­ferðar­eyju eftir að hafa tapað í fantasy - Vísir
Útvarpsmaðurinn Bolli Már Bjarnason leikur gallharðan Liverpool-mann í síðasta þætti sem hafnaði í neðsta sæti í Fantasy-deild vinahópsins. Refsingin ...
Tengja HR við HÍ og miðbæinn
📅 13.10.2026 👁️ 2
Tengja HR við HÍ og miðbæinn
Stjórn Strætó hefur ákveðið að breyta leiðinni sem vagn 8 fer til að hann tengi háskólana í Vatnsmýri og verði tenging við miðbæ Reykjavíkur.Leið 8 he...
Óhugnanlegt mál fyrir héraðsdómi: Misnotaði andlega fatlaða stúlku í fjögur ár og sankaði að sér barnaníðsefni
📅 13.10.2026 👁️ 2
Óhugnanlegt mál fyrir héraðsdómi: Misnotaði andlega fatlaða stúlku í fjögur ár og sankaði að sér barnaníðsefni
Fyrirtaka var föstudaginn 8. október í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli manns sem ákærður er fyrir margvísleg kynferðisbrot á árunum 2019 til 2023. Hann ...
Ship sinks in new drone attack off Bulgaria, PM summons Russian ambassador
📅 13.10.2026 👁️ 2
Ship sinks in new drone attack off Bulgaria, PM summons Russian ambassador
Bulgaria's prime minister says two merchant ships were hit by drones and he suspects Russia was behind the attacks.
AGS hækkar hagvaxtarspá fyrir heiminn árið 2026
📅 13.10.2026 👁️ 2
AGS hækkar hagvaxtarspá fyrir heiminn árið 2026
AGS hækkar hagvaxtarspá fyrir heiminn árið 2026 Í nýrri skýrslu gerir Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn ráð fyrir 3,1 pró­sents hag­vexti á heims­vísu....
Segir nær ómögulegt að koma vörum á markað
📅 13.10.2026 👁️ 2
Segir nær ómögulegt að koma vörum á markað
Samkeppniseftirlitið framkvæmdi á föstudag húsleit hjá Ölgerðinni. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefur undanfarna mánuði skoðað viðskiptahætti Ölger...
Mikilvægt að framkvæmdir tefjist ekki við Sjúkrahúsið á Akureyri
📅 13.10.2026 👁️ 2
Mikilvægt að framkvæmdir tefjist ekki við Sjúkrahúsið á Akureyri
Stefnt er að því að nýtt leigurými sem á að hýsa endurhæfingu dag- og göngudeildar Sjúkrahússins á Akureyri verði tekið í notkun 1. desember. Starfsem...
Rann­saka dauðs­fall í rússíbana í Six Flags - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Rann­saka dauðs­fall í rússíbana í Six Flags - Vísir
Í samtali við erlenda miðla sögðust sjónarvottar hafa séð mann kastast úr Goliath-rússíbananum en þær frásagnir hafa ekki fengist staðfestar samkvæmt ...
Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu - Vísir
Ráðist var á skipin rúmlega þrjátíu kílómetrum fyrir utan strendur Búlgaríu um klukkan hálf tíu í gærkvöldi samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðherra ...
Inga Lind selur miðborgarperluna
📅 13.10.2026 👁️ 3
Inga Lind selur miðborgarperluna
Inga Lind Karlsdóttir, ein eigenda Skot Productions, hefur sett einbýlishús sitt við Barónsstíg 16 í miðborginni á sölu. Eignin er 155,1 fm að stærð b...
Fyrsti alvöru hvellur vetrarins framundan – Þetta þurfa landsmenn að hafa í huga
📅 13.10.2026 👁️ 3
Fyrsti alvöru hvellur vetrarins framundan – Þetta þurfa landsmenn að hafa í huga
Fyrsti óveðurshvellur vetrarins er í uppsiglingu en eins og kunnugt er hefur Veðurstofa Íslands gefið út gular og appelsínugular viðvaranir fyrir stór...
Emergency calls from botched Christa Pike execution released to US media
📅 13.10.2026 👁️ 5
Emergency calls from botched Christa Pike execution released to US media
A series of calls, obtained by the Associated Press, reveal emergency services were delayed in reaching Pike.
Há­skólarnir verði betur tengdir með breyttri strætó­leið - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 4
Há­skólarnir verði betur tengdir með breyttri strætó­leið - Vísir
Leið 8 mun samkvæmt tilkynningu framvegis hafa viðkomu við Háskóla Íslands, Lækjartorg og Skúlagötu auk Háskólans í Reykjavík og Gömlu Hringbrautar lí...
Bjarni yfir 10 prósentin í Skaga
📅 13.10.2026 👁️ 4
Bjarni yfir 10 prósentin í Skaga
Sjávarsýn, eignarhaldsfélag Bjarna Ármannssonar, er orðið eigandi að meira en tíu prósenta hlut í Skaga hf. eftir að hafa aukið hlutafjáreign sína í g...
Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind
📅 13.10.2026 👁️ 4
Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind
Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind Donald Trump stimplar þá sem óvini sem halda áfram að nota hug­takið gervi­greind en ekki „ofur­greind“...
Scientists are analysing coastal litter to identify its sources and protect our beaches and wildlife
📅 13.10.2026 👁️ 4
Scientists are analysing coastal litter to identify its sources and protect our beaches and wildlife
Scientists are investigating the origins of rubbish found on 30 beaches across the Canary Islands as part of a European environmental research project...
Biðja fólk um að huga að veðri og flýta eða seinka ferðalögum
📅 13.10.2026 👁️ 5
Biðja fólk um að huga að veðri og flýta eða seinka ferðalögum
Lögregluembættin á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra hafa sent frá sér tilmæli til vegfarenda fyrir óveðrið sem er að vænta á morgun. Appelsínugular v...
Þurftu að kyrr­setja flug­vél vegna veggjalúsa - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 4
Þurftu að kyrr­setja flug­vél vegna veggjalúsa - Vísir
Veggjalýsnar fundust fremst á almennu farrými vélarinnar í flugi Qantas þann 9. október en þetta kemur fram í frétt Guardian um málið. Taka þurfti vél...
Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum - Vísir
Eftir að Nóbelsnefndin tilkynnti á fimmtudaginn að Anne Carson hefði hlotið bókmenntaverðlaunin þaut menningarblaðamaður Vísis vestur á Ægisíðu í von ...
Canary Islands Football Nights: Following AFCON's November qualifiers across time zones
📅 13.10.2026 👁️ 3
Canary Islands Football Nights: Following AFCON's November qualifiers across time zones
November's AFCON qualifiers fall after the Canary Islands return to winter time, keeping the islands an hour behind mainland Spain. A fixture advertis...
Lognið fyrir storminn
📅 13.10.2026 👁️ 3
Lognið fyrir storminn
Landsmenn geta átt von á hægum vindi en nokkurri rigningu í dag. Íbúar á Norður- og Austurlandi þurfa þó að bíða fram yfir hádegi áður en blotnar eitt...
Lög­reglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Lög­reglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða - Vísir
Gular og appelsínugular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir morgundaginn, en gert er ráð fyrir komu mjög djúprar lægðar sem á að ganga yfir lan...
Úkraínskt skip sökk í drónaárás
📅 13.10.2026 👁️ 3
Úkraínskt skip sökk í drónaárás
Úkraínskt skip sökk í drónaárás í morgun þegar árásir voru gerða á tvö úkraínsk skip í Svartahafi.Rumen Radev forsætisráðherra Búlgaríu greindi frá þe...
New bus routes in Adeje carry over 10,000 passengers in just five weeks
📅 13.10.2026 👁️ 3
New bus routes in Adeje carry over 10,000 passengers in just five weeks
Two new municipal bus routes in Adeje have recorded more than 10,000 passenger journeys in their first five weeks of operation, with the service conne...
Mótmælanda hent út af Trump samkomu meðan forsetinn kallaði hann feitan og sagði hann þurfa í megrun
📅 13.10.2026 👁️ 3
Mótmælanda hent út af Trump samkomu meðan forsetinn kallaði hann feitan og sagði hann þurfa í megrun
Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði mótmælanda feitan og sagði hann þurfa að fara í megrun þegar lögreglumenn fylgdu viðkomandi út af samkomu forse...
Hafa gert á­rásir á sex orku­mann­virki eftir yfir­lýsingu Trump - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Hafa gert á­rásir á sex orku­mann­virki eftir yfir­lýsingu Trump - Vísir
Að sögn Selenskí hafa bensínstöðvar, orkuinnviðir og fleiri mannvirki orðið fyrir árásum og alls hafa 30 slasast. Í viðtali við Fox News segir hann að...
TUESDAY WEATHER: Sunshine and temperatures up to 28°C in the Canary Islands today
📅 13.10.2026 👁️ 3
TUESDAY WEATHER: Sunshine and temperatures up to 28°C in the Canary Islands today
The Canary Islands can look forward to another day of pleasantly warm October temperatures today, Tuesday, with sunny intervals across much of the arc...
Carney hvetur til samstöðu viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta
📅 13.10.2026 👁️ 4
Carney hvetur til samstöðu viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta
Alberta er fjórða stærsta fylki Kanada og þar búa um fimm milljónir íbúa. Skoðanakannanir benda til þess að aðeins um fjórðungur íbúa Alberta vilji fu...
Russia's offensive ability is broken, Kyiv's former top general tells BBC
📅 13.10.2026 👁️ 5
Russia's offensive ability is broken, Kyiv's former top general tells BBC
In his first interview since being forced from his post, Gen Syrskyi speaks about Ukraine's future in the war.
Segja árásir á gagnaver hafa þaggað niður í rússneskum áróðursbottum
📅 13.10.2026 👁️ 5
Segja árásir á gagnaver hafa þaggað niður í rússneskum áróðursbottum
Nokkrir bandamenn Úkraínu og netnotendur segja að snarlega hafi dregið úr rússneskum áróðri og upplýsingaóreiðu á netinu. Ástæðan er sögð nýlegar árás...
BBC's Orla Guerin travels with Yemen's southern national security forces through desert battlefield
📅 13.10.2026 👁️ 3
BBC's Orla Guerin travels with Yemen's southern national security forces through desert battlefield
Orla Guerin travelled through Yemen, with forces loyal to its internationally recognised government, to a remote desert battlefield where Houthi rebel...
Karlmaður lést við fall úr rússíbana
📅 13.10.2026 👁️ 5
Karlmaður lést við fall úr rússíbana
Karlmaður lést og nokkrir slösuðust eftir rússíbanaslys í skemmtigarði Six Flags í Georgíu í Bandaríkjunum í gær.CNN segir að maðurinn hafi látist þeg...
Hútar vara Bandaríkin við að veita Sádi-Aröbum hernaðarlegan stuðning
📅 13.10.2026 👁️ 5
Hútar vara Bandaríkin við að veita Sádi-Aröbum hernaðarlegan stuðning
Hútar hafa varað Bandaríkjastjórn við því að blanda sér inn í stríðsátökin milli Húta og Sádi-Arabíu. Mohammed Al Bukhaiti, háttsettur maður í skæruli...
UK growth upgraded but energy prices and rates to bite in 2027
📅 13.10.2026 👁️ 4
UK growth upgraded but energy prices and rates to bite in 2027
The IMF report comes as final preparations are being made to the first Budget under Prime Minister Andy Burham.
UK growth forecast upgraded but energy prices and rates to hit in 2027
📅 13.10.2026 👁️ 3
UK growth forecast upgraded but energy prices and rates to hit in 2027
The prediction from the IMF comes as final preparations are being made to the first Budget under Prime Minister Andy Burham.
UK growth forecast upgraded but higher energy prices to hit economy next year
📅 13.10.2026 👁️ 1
UK growth forecast upgraded but higher energy prices to hit economy next year
The prediction from the IMF comes as final preparations are being made for the first Budget under Prime Minister Andy Burnham.
Why the Prime Minister wants to talk about Brexit again
📅 13.10.2026 👁️ 4
Why the Prime Minister wants to talk about Brexit again
For the first time since the UK left the EU, we have a prime minister who will "unflinchingly" debate Brexit, says the BBC's political editor Chris Ma...
Hundreds more prisoners to be freed in second phase of early release scheme
📅 13.10.2026 👁️ 5
Hundreds more prisoners to be freed in second phase of early release scheme
Second tranche of prisoners will include those serving up to two and a half years for crimes.