James Hetfield, söngvari og gítarleikari Metallica, skaut á skemmtikrafta sem nota tónleika til að hafa áhrif á skoðanir áhorfenda þegar hljómsveitin kom fram í Las Vegas á laugardag. Hann sagði hlutverk Metallica vera að leyfa fólki að gleyma vandamálunum fyrir utan tónleikahöllina og njóta tónlistarinnar.
„Hafa áhrif á ykkur með kjaftæðinu sínu“
Hetfield byrjaði á að þakka áhorfendum fyrir að leggja leið sína á tónleikana. Margir hefðu ferðast langt og varið bæði tíma og peningum í að sjá hljómsveitina.
„Ef þið búið ekki í Vegas hafið þið komið langa leið til að eyða tíma með Metallica. Við erum þakklát fyrir það. Ferðalagið, peningana sem þið eydduð, tímann sem þetta tók. Takk fyrir að koma og fagna með okkur.“
Þá beindi hann orðum sínum að öðrum skemmtikröftum.
„Og ég verð bara að segja að Metallica er ekki hér, eins og sumir aðrir skemmtikraftar, til að hafa áhrif á ykkur með kjaftæðinu sínu, ókei?“
Hann bætti við að hljómsveitin væri þar til að fólk gæti gleymt öllu ruglinu fyrir utan tónleikana. Það sem Metallica stæði fyrir væri ást, orka og þung tónlist.
Vill tengja fólk saman með tónlist
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Hetfield lýsir yfir þessari afstöðu. Í viðtali við chileska dagblaðið La Tercera, sem birtist 2. apríl 2017, var hann spurður um Donald Trump. Þá sagðist hann ætla að halda skoðun sinni fyrir sig.
„Ég er listamaður, söngvari sem spilar á gítar í hljómsveit. Ég hata stjórnmál, ég vil ekki tala um stjórnmál. Þau sundra fólki og ég vil tengja það saman með tónlist.“