Útsendarar rannsóknararms heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna gerðu húsleit á heimili Ilhan Omar, fulltrúadeildarþingmanns demókrata frá Minnesota, í Washington-borg fyrir dögun í gærmorgun.
Leitin er sögð tengjast sakamálarannsókn á meintu skjalafalsi fjölskyldu Omar þegar hún fékk hæli í Bandaríkjunum þegar hún var barn að aldri. Omar fæddist í Sómalíu og er fyrsti bandaríski þingmaðurinn sem fæddist í Afríku.
Repúblikanar hafa frá því áður en Omar var kjörin á þing árið 2018 haldið uppi samsæriskenningum um að hún hafi gifst bróður sínum til þess að fá bandarískan ríkisborgararétt. Hún hefur kallað slíkt svívirðilegar lygar.
Forðast yfirleitt aðgerðir sem þessar svo skömmu fyrir kjördag
Eftir húsleitina í gær sagði Omar í samfélagsmiðlafærslu að hún væri tilraun til þess að ráðast á pólitíska óvini Trump forseta og að beita alríkislögregluyfirvöldum sem vopni gegn þeim.
„Í tíu ár hefur Trump beint spjótum sínum að mér með stoðlausum lygum og rógsherferð. Þetta er bara nýjasta stigmögnunin á pólitískum ógnunum hans. Það verður ekki þaggað niður í mér,“ sagði Omar.
Leiðtogar Demókrataflokksins á þingi tóku í sama streng í sameiginlegri yfirlýsingu. Trump og hægriöfgamenn hans hefðu um árabil beint rætnum persónuárásum að Omar.
„Nú innan við þrjátíu dögum fyrir þingkosningar hefur ofbeldisfull fjöldabrottvísanavél hans lent á heimili réttkjörins þingmanns og fjölskyldu hans,“ sagði í yfirlýsingu Hakeem Jeffries, leiðtoga demókrata í fulltrúadeildinni og félaga hans.
AP-fréttastofan segir að bandaríska dómsmálaráðuneytið hafi sögulega reynt að forðast svo áberandi aðgerðir gegn frambjóðanda tveimur mánuðum fyrir kjördag.
Segist ekkert vita um rannsóknina
Trump sjálfur bar við fáfræði þegar fréttamenn spurðu hann um húsleitina í gær. Hann hefði ekki hugmynd um hvað rannsókninni á Omar liði.
Q: Did you know about Ilhan Omar's house search in advance? TRUMP: Well, I understand they are looking at her very carefully. I've always found her to be totally crooked personally, but that has nothing to do with me. I think she's a terrible person. She comes from a country that is a non-country.
— Aaron Rupar (@atrupar.com) October 12, 2026 at 9:01 PM
[image or embed]
Síðar í gær hélt Trump áfram að gagnrýna Omar og uppruna hennar á kosningafundi með stuðningsmönnum í Ohio. Sagði hann að Omar kæmu frá „einu versta landi nokkurs staðar á plánetunni“. Stuðningsmenn forsetans brugðust við með því að kyrja: „Brottvísun“.
Bæði Trump, J.D. Vance, varaforseti hans og fleiri repúblikanar hafa ekki farið leynt með að þeir telji að Omar sé ólöglega í Bandaríkjunum.
Markwayne Mullins, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, sagði í hlaðvarpsviðtali í síðasta mánuði að „eitthvað ætti eftir að gerast“ í rannsókn ríkisstjórnarinnar á Omar.
„Ef þú ákveður að brjóta lög eða ljúga í þeim upplýsingum sem þú gafst Bandaríkjunum til þess að geta komið til Bandaríkjanna þá er enginn fyrningarfrestur á því,“ sagði Mullin en Omar var þrettán ára þegar hún fékk hæli vestanhafs.