Stefnt er að því að nýtt leigurými sem á að hýsa endurhæfingu dag- og göngudeildar Sjúkrahússins á Akureyri verði tekið í notkun 1. desember. Starfsemin fór áður fram á Kristnesi í Eyjafjarðarsveit en hún lagðist af í sumar sökum myglu og rakaskemmda í húsnæðinu.
Nýja leigurýmið er 800 fermetrar og er við Óseyri. Það er hannað og innréttað með þarfir SAk að leiðarljósi. Á legudeildinni á Kristnesi voru 20 rými en eftir að starfsemin lagðist af þar hafa á bilinu 6-9 legurými inni á SAk komið í staðinn.
Vinna við fyrsta áfanga nýrrar legudeildar SAk er í fullum gangi. Þar er verið að gera bílaplan sem leysir það gamla af hólmi. Nýja deildin á að rísa þar sem gamla bílaplanið stendur.
Samkvæmt upplýsingum frá Nýja Landspítala ohf., sem sér um framkvæmdirnar, er vonast til að næsti áfangi verði boðinn út innan fárra mánaða. Ef allt gengur að óskum gætu framkvæmdir hafist á haustmánuðum 2027. Áætlunin er þó sett fram með ýmsum fyrirvörum, meðal annars um fjármagn og að enginn kæri útboðið. Kærur á útboðum hafa tafið framkvæmdir við Nýja Landspítala við Hringbraut í Reykjavík verulega.
Guðjón Hauksson forstjóri SAk segir gríðarlega mikilvægt að verkið vinnist hratt.
„Við bindum vonir við það að á Sjúkrahúsinu á Akureyri verði engar tafir á þessari nýju legudeildarálmu. Það er gríðarlega mikilvægt.“