Atvinnuleysi eykst og verður næstum sex prósent á næsta ári á sama tíma og hagvöxtur verður bara rétt rúmlega eitt prósent, ef hagspá Alþýðusambands Íslands gengur eftir.
ASÍ birti hagspá sína í dag þar sem gert er ráð fyrir hægagangi í hagkerfinu og dekkri horfum í atvinnumálum.
Samkvæmt spánni verður hagvöxtur 1,9 prósent í ár en aðeins 1,1 prósent á næsta ári. ASÍ spáir 2,0 prósenta hagvexti 2028. Það sem helst dregur úr hagvexti á næsta ári er samdráttur í byggingu íbúðarhúsnæðis.
Atvinnuleysi verður viðvarandi næstu árin samkvæmt spánni. Það nær hámarki í 5,8 prósentum í ár en verður í kringum fimm prósent næstu tvö árin. Það er öllu meira en síðustu ár þegar atvinnuleysi hefur að jafnaði verið undir fjórum prósentum ef frá eru talin áföll eins og covid-faraldurinn.
Verðbólguhorfurnar eru öllu betri. ASÍ spáir því að hún nái hámarki í 5,5 prósentum í ár, verði 4,0 prósent á næsta ári og fari í 2,5 prósent 2028. Það eru verðbólgumarkmið Seðlabankans sem hafa ekki náðst síðan fyrir heimsfaraldur 2020.