Ráðist var á skipin rúmlega þrjátíu kílómetrum fyrir utan strendur Búlgaríu um klukkan hálf tíu í gærkvöldi samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðherra Búlgara, Rumen Radev.
Um er að ræða annað atvikið á innan við viku á þessu svæði en annað skipanna sem ráðist var á í gær sökk og segir í frétt Sky News að einum úr áhöfninni hafi verið bjargað. Ekki er greint frá afdrifum annarra um borð.
Mun kalla sendiherrann á sinn fund
Skipið sem sökk var í eigu Tyrkja en sigldi undir fána Sankti Vinsent og Grenadínu. Hitt skipið sem ráðist var á er úkraínska skipið Chelsea 3 sem siglir undir maltneskum fána.
„Þetta er algjörlega óásættanlegt, önnur árás í nálægð við búlgarska landhelgi,“ er haft eftir Radev sem mun ræða við Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, um málið.
Óljóst er hver stendur að baki árásunum en Radev segir að Rússar hafi gagn af þeim og bætti við að hann myndi kalla rússneska sendiherrann í Búlgaríu á sinn fund. Búlgaría á hvorki landamæri að Úkraínu né Rússlandi en er í NATO og er staðsett við Svartahafið þar sem bæði löndin eru með stórar hafnir.
Óásættanlegt að Svartahafið sé orðið að vígvelli
Árásirnar auka á áhyggjur af frekari árásum Rússa á yfirráðasvæði NATO.
Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen, fordæmdi árásirnar í færslu á samfélagsmiðlum.
„Svartahafið er orðið að enn einum vígvellinum í stríði Rússa í Úkraínu. Þetta er óásættanlegt,“ skrifar von der Leyen.
„Þetta stefndi lífi áhafnanna í mikla hættu og ógnar örygginu á Svartahafi. Við stöndum með Búlgaríu og þökkum björgunaraðilum fyrir skjót viðbrögð. Þeir sem bera ábyrgð skulu verða látnir svara til saka.“