Kaþólskari en páfinn

Jón Magnússon skrifar:
Þegar Rússlands/Úkraínustríðið hófst 24. feb.2022 lýstu NATO ríkin yfir stuðningi við Úkraínu, en í stað þess að setja fram tillögur og/eða kröfur sem gætu leitt til friðarsamninga þá sammæltust þau um að draga efnahagslegan mátt úr Rússum með því að hætta viðskiptum við þá. Hvorugt hefur gengið eftir.
Viðskipti einstaklinga og þjóða á milli eru þau marki brennd, að þau komast ekki á nema þau séu hagfelld fyrir báða aðila. Þannig hefur Evrópa tapað ekki síður en Rússar á þeim takmörkuðu svokölluðu refsiaðgerðum sem NATO ríki Evrópu hafa beitt Rússa.
Ísland hefur farið fremst í flokki þeirra sem hafa lokað á viðskipti við Rússa, það hefur verið okkur dýrt og kostað atvinnu nokkurs fjölda fólks. Fáránlegast var þó þegar íslenska sendiráðinu í Moskvu var lokað algerlega af tilefnislausu. Svo ekki sé minnst á þegar núverandi utanríkisráðherra eyðilagði fyrirtæki á Akureyri vegna meintrar aðkomu Rússa.
Á sama tíma og skammsýnir utanríkisráðherrar hafa lokað á viðskipti milli Íslands og Rússlands halda önnur NATO ríki þeim áfram til hagsbóta fyrir eigin neytendur og fyrirtæki að nokkru leyti, en hafa lokað á sumt. Við erum því kaþólskari en páfinn hvað þetta varðar. Meira að segja Danir framleiða og selja Rússum þau lyf sem þeir hafa að selja.
Nú hefur utanríkismálasérfræðingur allra tíma, Donald Trump keypt mikið magn af dísilolíu frá Rússum og fer þá þvert á það sem NATO ríkin höfðu áður samþykkt. NATO ríkin í Evrópu mættu þá á enn einn fundinn og ákváðu hertari aðgerðir gegn Rússum. Þær munu ekki ganga eftir frekar en fyrri aðgerðir. Sennilega hefur engin utanríkisráðherra verið í erfiðari aðstöðu en Marc Rubio og hefur ítrekað sýnt snilli sína við að vinda ofan af því sem yfirmaður hans Trump gerir og lætur hafa eftir sér en það er annað mál.
Styrjöldin milli Rússa og Úkraínumanna hefur staðið lengur en fyrri heimstyrjöld með miklu mannfalli. Það er til vansa fyrir NATO ríkin að hafa ekki komið á friði fyrir löngu síðan og sett stríðsaðilum úrslitakosti og framfylgja þeim væri ekki tauti fyrir þá komið. Ótrúlegt að horfa á hve aum Evrópa er orðin að geta ekki tekið á svona málum og komið á friði.