Bændur á Norðurlandi vestra eru nú í óðaönn að undirbúa tilfærslu á skepnum af túnum og koma þeim í skjól eða á hús, áður en vonskuveður skellur á, á morgun. Á hrossaræktarbúinu Bessastöðum við Hrútafjörð eru undirbúningur hafinn fyrir veðurhvellinn. Rætt verður við Jóhann Magnússon, sem var að færa til hesta sína þegar fréttastofan náði tali af honum.
Þá verður rætt við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra, sem viðurkennir að hafa gert mistök við skipun fólks í Jafnréttisráði. Sjóðurinn var skipaður þremur konum sem hafi verið mistök að hennar mati.
Einnig verður rætt við atvinnuvegaráðherra segir að ekki hafi verið skoðað að stöðva eða setja hömlur á uppbyggingu sjókvíaeldis á Seyðisfirði. Hún fundar með fulltrúum náttúruverndarsamtaka á morgun.
Þá hugum við að ófriði fyrir botni Miðjarðarhafs, en þar er Air Atlanta með umfangsmikla starfsemi. Í hádegisfréttum segir framkvæmdastjóri félagsins að Air Atlanta hafi dregið gríðarlega úr umsvifum sínum í Sádíu-Arabíu undanfarna mánuði vegna ástandsins á svæðinu. Hann segir félagið fylgjast grannt með stöðunni í landinu eftir mannskæðar eldflaugaárásir Húta sem beinst hafa gegn flugvöllum í landinu.
Þetta og fleira í hádegisfréttum á Bylgjunni á slaginu tólf.