Eins og kunnugt er hefur andað afar köldu á milli formanna tveggja fjölmennustu verkalýðsfélaga landsins, Eflingar og VR. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur gagnrýnt Höllu Gunnarsdóttur formann VR harðlega, nú síðast eftir að samningar tókust á síðustu stundu milli VR og atvinnurekenda, eftir að forystu félagsins hafði verið veitt umboð til að segja kjarasamningum upp. Hefur Sólveig Anna meðal annars sagt að Halla og annað forystufólk VR hafi beitt sér fyrir því að félagsmenn, sem séu margir hverjir á hærri launum en félagar Eflingar, fái hagstæðari kjarasamninga en Efling.
Segir að svona ætli Halla og VR að taka ASÍ yfir