Fjórir af sjö stöðum þar sem áform eru uppi um að reisa vindorkuver fara í verndarflokk, samkvæmt tillögu verkefnisstjórnar um rammaáætlun. Einn valkostur fer í nýtingarflokk og tveir í biðflokk.
Tillögurnar voru birtar í samráðsgátt stjórnvalda í gær.
Einn af sjö kostum í nýtingarflokk
Garpsdalur er eini staðurinn sem settur er í nýtingarflokk í tillögunum. Það er rökstutt með því að vindorkuver þar hafi minnst neikvæð áhrif á þá þætti sem eru til skoðunar og því að jákvæð áhrif séu mögulega meiri.
Þó er settur sá fyrirvari að óvissa ríki um hversu mikið yrði um að hafernir, fálkar og rjúpur flygju á vindmyllurnar. Sérstaklega er horft til þess hversu fáliðaður og viðkvæmur hafarnarstofninn er. Þar sem áhættumat á áflugshættu fugla er forsenda fyrir útgáfu virkjanaleyfis er Garpsdalur settur í nýtingarflokk.
Upphaflega var lagt til að Garpsdalur færi í biðflokk en Jóhann Páll Jóhannsson, ráðherra orkumála, lagði til að hann færi í nýtingarflokk.
Tveir umdeildir kostir í biðflokk
Alviðra í Borgarfirði er sett í biðflokk. Sveitarstjórnin í Borgarbyggð hafði lagst gegn því að hún yrði sett í nýtingarflokk. Það var bæði vegna áhrifa á landslag og efasemda um raunverulegt framlag vindorkuversins til orkuöryggis landsins.
Í tillögunni um að setja Alviðru í biðflokk segir að mörg atriði mæli á móti Alviðru sem ákjósanlegri staðsetningu fyrir vindorkuver. Þar skipti sérstaklega máli hversu sýnilegar vindmyllurnar yrðu í stóru héraði, hversu verðmætt landslagið væri og neikvæð afstaða samfélagsins.
Hnotasteinn á Melrakkasléttu er settur í biðflokk þar sem vindorkuver þar gæti haft neikvæð áhrif á uppbyggingu útivistar og ferðaþjónustu. Neikvæð áhrif orkuvers á víðerni eru talin mjög neikvæð.
Í ársbyrjun hvatti þáverandi meirihluti í Norðurþingi til þess að Hnotasteinn yrði færður í nýtingarflokk en minnihlutinn mótmælti því.
Fjórir kostir í verndarflokk vegna ferðaþjónustu og hafarnar
Fjórir virkjanakostir voru settir í verndarflokk, þrír vegna áhrifa á ferðaþjónustu og útivist og einn vegna áhrifa á hafarnarstofninn.
Hrútmúlavirkjun í Skeiða- og Gnúpverjahreppi þykir myndu hafa verulega neikvæð áhrif á ferðaþjónustu og útivist auk þess sem hún hefur mætt umtalsverðri andstöðu í nærsamfélaginu.
Mosfellsheiði I og Mosfellsheiði II voru talin eiga það sameiginlegt að hafa verulega neikvæð áhrif á ferðaþjónustu og útivist á nokkrum af mikilvægustu ferðasvæðum landsins. Orkuveitan vildi reisa vindorkuver þar með allt að 210 metra háum vindmyllum.
Vindorkuverið sem var áformað að byggja upp við Sólheima í Laxárdal í Dölum yrði í meginfarleið hafarna og það varð til þess að sá valkostur var settur í verndarflokk.