„Það er búið að hleypa níðingum inn í herbergi til barnanna okkar“

„Það er búið að hleypa níðingum inn í herbergi til barnanna okkar“

„Það er búið að hleypa níðingum inn í herbergi til barnanna okkar“

Tilkynningum um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot fjölgar mikið milli ára, samkvæmt tölfræði frá lögreglunni. Um 350 brot voru tilkynnt fyrri helming ársins og tæplega helmingur brotaþola var börn.

Tilkynningar hafa ekki verið fleiri síðan 2021. Kristján Ingi Kristjánsson, fulltrúi í kynferðisbrotadeild lögreglunnar, segir hættulegt að afhenda mjög ungum börnum snjallsíma og önnur sambærileg tæki.

Í ljósi fjölgunar stafrænna kynferðisbrota og hás hlutfalls barna meðal brotaþola munu ríkislögreglustjóri og lögregluembættin í samstarfi við fjölda stofnana og samtaka standa fyrir vitundarvakningu um stafrænt ofbeldi meðal barna og ungmenna í október.

Kristján segir aukninguna vera í takti við þróun snjallsímavæðingarinnar undanfarna tvo áratugi. Barnaníðingsefni sé orðið umfangsmeira og því sé dreift milli manna.

„Það er búið að hleypa níðingum inn í herbergi til barnanna okkar,“ segir Kristján í samtali við Morgunútvarp Rásar 2.

Kristján segir að nýir samskiptamátar hafi verið að koma fram á sjónarsviðið og að þeir séu misnotaðir á margan hátt. Aðspurður sagðist hann telja foreldra að mörgu leyti sofandi á verðinum.

„Við gleymum því að forvarnir byrja á heimilunum. Það er hættulegt að láta mjög ung börn fá snjallsíma og önnur sambærileg tæki í hendurnar.“

Kristján segir brotamennina meðal annars nálgast fólk á samfélagsmiðlum og leikjasíðum. Engin takmörk séu á hvaða leiðum sé beitt við blekkingar, börnin haldi sig jafnvel vera að tala við jafnaldra eða jafningja.

„Jafnvel er verið að kúga börn til að gera eitthvað við annað fólk. Þannig mál koma inn á borð lögreglu í hverri viku, þar sem til dæmis er búið að kúga börn til að senda nektarmyndir.“

Þá segir Kristján að börnunum sé hótað að dreifa myndunum um allt sendi þau ekki enn þá grófara efni. Sum börn reyni jafnvel að borga sig út úr þessum hótunum – og fullorðnir líka.

Aðeins toppurinn á ísjakanum

„Við erum örugglega bara að sjá toppinn á ísjakanum, af hlutum sem eru mjög illviðráðanlegir. Þetta eru brot sem ná út fyrir landamæri og oft er ekki hægt að rekja upprunann.“

Kristján segir alveg öruggt að ekki séu öll brot tilkynnt, líkt og önnur kynferðisbrot eru þau falin og fólk segir ekki frá fyrr en allt er komið í óefni og jafnvel enn verra en það.

„Fólk er hrætt við að tilkynna enda fylgir brotunum gríðarleg skömm, hvort sem það tekur til manns sjálfs eða einhvers nátengds. Þá hefst einhvers konar þöggun, því fólk vill ekki kalla skömm yfir alla fjölskylduna með því að gera þetta opinbert,“ segir Kristján.

„Fólk reynir oft að leysa úr þessu sjálft, sem er í sjálfu sér gott, en aðalmálið er að fræða börnin um hættuna á netinu og gleyma því ekki að forvarnir í svona málum byrja heima. Það er á ábyrgð foreldra að uppfræða börnin en ekki endilega einhverra stofnana.“

Kristján segir aðspurður að varlega þurfi að fara með allar myndbirtingar af börnum á samfélagsmiðlum því gervigreindin geri kleift að skeyta saman myndum ótakmarkað. Sífellt erfiðara verður að leysa mál af þessu tagi, að sögn Kristjáns, þau eru illrekjanleg og ná út fyrir landsteina.

Misvel gengur að hafa hendur í hári níðinganna

Ekki eru allir þeir sem reka netþjóna tilbúnir að gefa lögreglunni upplýsingar. Þannig séu málin erfið og tímafrek í úrvinnslu. Misvel gengur að hafa hendur í hári níðinganna að sögn Kristjáns, sönnunarbyrðin er erfið og oft þarf að rekja þau milli landa.

Þetta er oft skipuleg brotastarfsemi, blekkingum er beitt og iðulega í fjárhagslegum tilgangi. Ungt fólk telur sig oft vera komið í spennandi samband og fer að senda nektarmyndir af sér og þá hefst fjárkúgunin með hótunum um að dreifa þeim til foreldra, vina, ættingja og annarra nákominna.

Jafnvel er þeim hótað að fjölskyldumeðlimir verði beittir ofbeldi. Þekkt er að unglingar hafi notað öll sumarlaunin sín til að koma í veg fyrir birtingu og það þekkist líka að fullorðnir hafi greitt mikla peninga.

Fólk úti í heimi getur sent skilaboð á íslensku með hjálp gervigreindarinnar auk þess sem fjölmargir tala ensku. Það getur gerst að mynd af barni fari á flug um allan heim með tilheyrandi afleiðingum. Myndbirting af þessu tagi getur haft í för með sér mikið andlegt niðurrif hjá börnum.

Kristján telur að barnaverndarnefndir taki vel utan um þau en auðvitað megi alltaf gera betur í þeim efnum. „Samfélagslögreglumenn hafa staðið vaktina, til dæmis hvað snertir vitundarvakningu, en betur má ef duga skal, enda þarf að fara í gegnum allt kerfið.“

#búið #hleypa #inn #níðingum #það


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-13-thad-er-buid-ad-hleypa-nidingum-inn-i-herbergi-til-barnanna-okkar-489663

📰 Aðrar fréttir

Stunduðu ítrekað kynlíf í gervi á tökustað þáttanna The Americans
📅 13.10.2026 👁️ 1
Stunduðu ítrekað kynlíf í gervi á tökustað þáttanna The Americans
Leikararnir Keri Russell og Matthew Rhys höfðu gaman af því að nota gervi í þáttunum The Americans, sem sýndir voru í sex þáttaröðum frá janúar 2013 t...
Bryan Cranston harmi sleginn – „Ég mun sakna þín, sonur“
📅 13.10.2026 👁️ 2
Bryan Cranston harmi sleginn – „Ég mun sakna þín, sonur“
Bandaríski leikarinn Bryan Cranston er harmi sleginn eftir andlát RJ Mitte, sem lék son hans í hinum geysivinsælu sjónvarpsþáttum Breaking Bad. Mitte ...
Ræddi framtíð Breaking Bad í síðustu samfélagsmiðlafærslu sinni
📅 13.10.2026 👁️ 2
Ræddi framtíð Breaking Bad í síðustu samfélagsmiðlafærslu sinni
Leikarinn RJ Mitte lést í Brownsville í Texas í gær, mánudaginn 12. október. Umboðsaðilar leikarans staðfestu í nótt að hann hefði látist, 34 ára að a...
Marinó segir eitthvað annað búa að baki: „Þetta stenst enga skoðun“
📅 13.10.2026 👁️ 2
Marinó segir eitthvað annað búa að baki: „Þetta stenst enga skoðun“
Marinó G. Njálsson ráðgjafi segir að það standist ekki skoðun að hófleg hækkun launa leiði til tæplega sex prósent verðbólgu, þegar rýnt sé í tölur fr...
Eigandi brugghúss segir nær ómögulegt að koma vörum á markað vegna Ölgerðarinnar
📅 13.10.2026 👁️ 1
Eigandi brugghúss segir nær ómögulegt að koma vörum á markað vegna Ölgerðarinnar
Samkeppniseftirlitið gerði síðastliðinn föstudag húsleit í höfuðstöðvum Beru hf, móðurfélags Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf, vegna gruns um ...
„Maður undir­býr sig fyrir það versta“ - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
„Maður undir­býr sig fyrir það versta“ - Vísir
Þetta segir Jóhann Magnússon, hrossabóndi á Bessastöðum við Hrútafjörð, sem leggur nú allt kapp á að koma hrossum í var fyrir yfirvofandi óveður. Bænd...
„Ég mun sakna þín, sonur“ - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
„Ég mun sakna þín, sonur“ - Vísir
Roy Frank Mitte lést í heimabæ sínum, Brownsville í Texas-ríki, í gær aðeins 34 ára að aldri og greindu fjölmiðlar vestanhafs frá því að hann hefði st...
Synjað um heimilis­upp­bót vegna sam­eigin­legrar þvotta­vélar og snyrtingar - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Synjað um heimilis­upp­bót vegna sam­eigin­legrar þvotta­vélar og snyrtingar - Vísir
Heimilisuppbót er viðbót við lífeyrisgreiðslur fyrir fólk sem er eitt um heimilisrekstur. Rétturinn ræðst einnig af því hvort viðkomandi hafi fjárhags...
Kaþólskari en páfinn
📅 13.10.2026 👁️ 1
Kaþólskari en páfinn
Kaþólskari en páfinn Fréttin13. október 2026Erlent, Innlent, Jón Magnússon, StjórnmálLeave a Comment Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ...
Kristrún gerir Þorgerði óþarfa
📅 13.10.2026 👁️ 1
Kristrún gerir Þorgerði óþarfa
Kristrún gerir Þorgerði óþarfa Fréttin13. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Þorgerður Katrín...
Ellefu sjómanna saknað eftir drónaárásir við Búlgaríu – tvö flutningaskip urðu fyrir árásum
📅 13.10.2026 👁️ 1
Ellefu sjómanna saknað eftir drónaárásir við Búlgaríu – tvö flutningaskip urðu fyrir árásum
Ellefu sjómanna saknað eftir drónaárásir við Búlgaríu – tvö flutningaskip urðu fyrir árásum Fréttin13. október 2026ErlentLeave a Comment Ellefu sjóman...
Le Pen spáð er sigri í frönsku forsetakosningunum
📅 13.10.2026 👁️ 2
Le Pen spáð er sigri í frönsku forsetakosningunum
Le Pen spáð er sigri í frönsku forsetakosningunum Fréttin13. október 2026Erlent, KosningarLeave a Comment Samkvæmt nýrri skoðanakönnun er franski hægr...
Bombur á Barokki á klúbbnum - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Bombur á Barokki á klúbbnum - Vísir
Tónleikarnir voru stærri en nokkru sinni fyrr og færðir frá næturklúbbnum Auto yfir í Austurbæjarbíói í ár. Fólk lagði mikinn metnað í tryllta barokk-...
Spá minni hagvexti og þrálátu atvinnuleysi
📅 13.10.2026 👁️ 2
Spá minni hagvexti og þrálátu atvinnuleysi
Atvinnuleysi eykst og verður næstum sex prósent á næsta ári á sama tíma og hagvöxtur verður bara rétt rúmlega eitt prósent, ef hagspá Alþýðusambands Í...
Komu samferðafólki sínu á óvart með ferð í Túbunni
📅 13.10.2026 👁️ 2
Komu samferðafólki sínu á óvart með ferð í Túbunni
Mæðgurnar, Katrín Middleton og Charlotte prinsessa, komu samferðafólki sínu á óvart þegar þær tóku sér far með neðanjarðarlestinni, sem oft er kölluð ...
Þetta er ástæða æðiskasts Blair á sunnudag að sögn lögmanna - Á yfir höfði sér 2-7 ára fangelsi
📅 13.10.2026 👁️ 2
Þetta er ástæða æðiskasts Blair á sunnudag að sögn lögmanna - Á yfir höfði sér 2-7 ára fangelsi
Leikkonan Selma Blair var handtekin í gær eftir að hafa gengið berserksgang í flugi. TMZ greindi frá og hafði eftir vitnum og hljóðupptökum sem miðlin...
Stórslys hjá Tom Cruise: Nýja myndin stefnir í sögulegt tap
📅 13.10.2026 👁️ 2
Stórslys hjá Tom Cruise: Nýja myndin stefnir í sögulegt tap
Nýjasta kvikmynd stórleikarans Tom Cruise, Digger, gæti orðið eitt mesta fjárhagslega flopp í sögu Hollywood þegar tekið er tillit til framleiðslukost...
Vona að á­greiningur liti ekki þing ASÍ - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Vona að á­greiningur liti ekki þing ASÍ - Vísir
Tveir hafa tilkynnt um framboð til forseta ASÍ en frestur er til föstudags, þegar kosningu lýkur. Annar er Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur og samfé...
Andersson mistókst í annarri tilraun að mynda stjórn
📅 13.10.2026 👁️ 2
Andersson mistókst í annarri tilraun að mynda stjórn
Ekki eru forsendur eins og staðan er núna til að mynda ríkisstjórn sem hefur nægan stuðning á þingi. Þetta sagði Magdalena Andersson leiðtogi Jafnaðar...
Már varar við óæskilegum afleiðingum leigubremsunnar – Bendir á víti til varnaðar
📅 13.10.2026 👁️ 2
Már varar við óæskilegum afleiðingum leigubremsunnar – Bendir á víti til varnaðar
Már Wolfgang Mixa, hagfræðingur og lektor við Háskóla Íslands, varar við því að fyrirhuguð leigubremsa yfirvalda geti haft óæskilegar afleiðingar ef o...
Lagaákvæði gegn réttindum hinsegin fólks felld úr gildi
📅 13.10.2026 👁️ 2
Lagaákvæði gegn réttindum hinsegin fólks felld úr gildi
Þingið í Ungverjalandi samþykkti í morgun að fjarlægja lagaákvæði gegn hinsegin fólki í sérstökum „barnaverndarlögum“ sem samþykkt voru árið 2021. Þet...
Poundland in rescue talks as owners seek buyer
📅 13.10.2026 👁️ 2
Poundland in rescue talks as owners seek buyer
The leadership team is attempting a buyout, but a union has warned the retailer could fall into administration instead.
Óvissa um vopnahlé eykur óróa á orkumörkuðum
📅 13.10.2026 👁️ 2
Óvissa um vopnahlé eykur óróa á orkumörkuðum
Óvissa um vopnahlé eykur óróa á orkumörkuðum Árásir Húta á Sádi-Arabíu ýttu undir áhyggjur af olíu­fram­boði, en óvissa um meint vopna­hlé milli Rúss­...
Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu
📅 13.10.2026 👁️ 1
Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu
Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu Klettagljúfur 23 Glæsilegt rúmlega 400 fermetra einbýlishús við Klettagljúfur 23 í Ölfusi hefur verið ...
Metallica skýtur föstum skotum á tónlistamenn sem predika um pólitík á tónleikum sínum
📅 13.10.2026 👁️ 2
Metallica skýtur föstum skotum á tónlistamenn sem predika um pólitík á tónleikum sínum
James Hetfield, söngvari og gítarleikari Metallica, skaut á skemmtikrafta sem nota tónleika til að hafa áhrif á skoðanir áhorfenda þegar hljómsveitin ...
Þing­kona segist fórnar­lamb pólitískra ógnana Trump eftir hús­leit - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Þing­kona segist fórnar­lamb pólitískra ógnana Trump eftir hús­leit - Vísir
Útsendarar rannsóknararms heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna gerðu húsleit á heimili Ilhan Omar, fulltrúadeildarþingmanns demókrata frá Minnesota, í W...
Tjaldaði á um­ferðar­eyju eftir að hafa tapað í fantasy - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Tjaldaði á um­ferðar­eyju eftir að hafa tapað í fantasy - Vísir
Útvarpsmaðurinn Bolli Már Bjarnason leikur gallharðan Liverpool-mann í síðasta þætti sem hafnaði í neðsta sæti í Fantasy-deild vinahópsins. Refsingin ...
Tengja HR við HÍ og miðbæinn
📅 13.10.2026 👁️ 3
Tengja HR við HÍ og miðbæinn
Stjórn Strætó hefur ákveðið að breyta leiðinni sem vagn 8 fer til að hann tengi háskólana í Vatnsmýri og verði tenging við miðbæ Reykjavíkur.Leið 8 he...
Óhugnanlegt mál fyrir héraðsdómi: Misnotaði andlega fatlaða stúlku í fjögur ár og sankaði að sér barnaníðsefni
📅 13.10.2026 👁️ 3
Óhugnanlegt mál fyrir héraðsdómi: Misnotaði andlega fatlaða stúlku í fjögur ár og sankaði að sér barnaníðsefni
Fyrirtaka var föstudaginn 8. október í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli manns sem ákærður er fyrir margvísleg kynferðisbrot á árunum 2019 til 2023. Hann ...
Ship sinks in new drone attack off Bulgaria, PM summons Russian ambassador
📅 13.10.2026 👁️ 2
Ship sinks in new drone attack off Bulgaria, PM summons Russian ambassador
Bulgaria's prime minister says two merchant ships were hit by drones and he suspects Russia was behind the attacks.
Bulgarian PM summons Russian ambassador after ship sinks in Black Sea drone attack
📅 13.10.2026 👁️ 1
Bulgarian PM summons Russian ambassador after ship sinks in Black Sea drone attack
Eleven crew members are missing after a merchant ship was sunk overnight, local officials say.
AGS hækkar hagvaxtarspá fyrir heiminn árið 2026
📅 13.10.2026 👁️ 3
AGS hækkar hagvaxtarspá fyrir heiminn árið 2026
AGS hækkar hagvaxtarspá fyrir heiminn árið 2026 Í nýrri skýrslu gerir Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn ráð fyrir 3,1 pró­sents hag­vexti á heims­vísu....
Segir nær ómögulegt að koma vörum á markað
📅 13.10.2026 👁️ 3
Segir nær ómögulegt að koma vörum á markað
Samkeppniseftirlitið framkvæmdi á föstudag húsleit hjá Ölgerðinni. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefur undanfarna mánuði skoðað viðskiptahætti Ölger...
Mikilvægt að framkvæmdir tefjist ekki við Sjúkrahúsið á Akureyri
📅 13.10.2026 👁️ 3
Mikilvægt að framkvæmdir tefjist ekki við Sjúkrahúsið á Akureyri
Stefnt er að því að nýtt leigurými sem á að hýsa endurhæfingu dag- og göngudeildar Sjúkrahússins á Akureyri verði tekið í notkun 1. desember. Starfsem...
Rann­saka dauðs­fall í rússíbana í Six Flags - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Rann­saka dauðs­fall í rússíbana í Six Flags - Vísir
Í samtali við erlenda miðla sögðust sjónarvottar hafa séð mann kastast úr Goliath-rússíbananum en þær frásagnir hafa ekki fengist staðfestar samkvæmt ...
Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu - Vísir
Ráðist var á skipin rúmlega þrjátíu kílómetrum fyrir utan strendur Búlgaríu um klukkan hálf tíu í gærkvöldi samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðherra ...
Inga Lind selur miðborgarperluna
📅 13.10.2026 👁️ 3
Inga Lind selur miðborgarperluna
Inga Lind Karlsdóttir, ein eigenda Skot Productions, hefur sett einbýlishús sitt við Barónsstíg 16 í miðborginni á sölu. Eignin er 155,1 fm að stærð b...
Fyrsti alvöru hvellur vetrarins framundan – Þetta þurfa landsmenn að hafa í huga
📅 13.10.2026 👁️ 3
Fyrsti alvöru hvellur vetrarins framundan – Þetta þurfa landsmenn að hafa í huga
Fyrsti óveðurshvellur vetrarins er í uppsiglingu en eins og kunnugt er hefur Veðurstofa Íslands gefið út gular og appelsínugular viðvaranir fyrir stór...
Emergency calls from botched Christa Pike execution released to US media
📅 13.10.2026 👁️ 5
Emergency calls from botched Christa Pike execution released to US media
A series of calls, obtained by the Associated Press, reveal emergency services were delayed in reaching Pike.
Há­skólarnir verði betur tengdir með breyttri strætó­leið - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 4
Há­skólarnir verði betur tengdir með breyttri strætó­leið - Vísir
Leið 8 mun samkvæmt tilkynningu framvegis hafa viðkomu við Háskóla Íslands, Lækjartorg og Skúlagötu auk Háskólans í Reykjavík og Gömlu Hringbrautar lí...
Bjarni yfir 10 prósentin í Skaga
📅 13.10.2026 👁️ 4
Bjarni yfir 10 prósentin í Skaga
Sjávarsýn, eignarhaldsfélag Bjarna Ármannssonar, er orðið eigandi að meira en tíu prósenta hlut í Skaga hf. eftir að hafa aukið hlutafjáreign sína í g...
Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind
📅 13.10.2026 👁️ 4
Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind
Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind Donald Trump stimplar þá sem óvini sem halda áfram að nota hug­takið gervi­greind en ekki „ofur­greind“...
Scientists are analysing coastal litter to identify its sources and protect our beaches and wildlife
📅 13.10.2026 👁️ 4
Scientists are analysing coastal litter to identify its sources and protect our beaches and wildlife
Scientists are investigating the origins of rubbish found on 30 beaches across the Canary Islands as part of a European environmental research project...
Biðja fólk um að huga að veðri og flýta eða seinka ferðalögum
📅 13.10.2026 👁️ 5
Biðja fólk um að huga að veðri og flýta eða seinka ferðalögum
Lögregluembættin á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra hafa sent frá sér tilmæli til vegfarenda fyrir óveðrið sem er að vænta á morgun. Appelsínugular v...
Þurftu að kyrr­setja flug­vél vegna veggjalúsa - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 4
Þurftu að kyrr­setja flug­vél vegna veggjalúsa - Vísir
Veggjalýsnar fundust fremst á almennu farrými vélarinnar í flugi Qantas þann 9. október en þetta kemur fram í frétt Guardian um málið. Taka þurfti vél...
Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum - Vísir
Eftir að Nóbelsnefndin tilkynnti á fimmtudaginn að Anne Carson hefði hlotið bókmenntaverðlaunin þaut menningarblaðamaður Vísis vestur á Ægisíðu í von ...
Canary Islands Football Nights: Following AFCON's November qualifiers across time zones
📅 13.10.2026 👁️ 3
Canary Islands Football Nights: Following AFCON's November qualifiers across time zones
November's AFCON qualifiers fall after the Canary Islands return to winter time, keeping the islands an hour behind mainland Spain. A fixture advertis...
Lognið fyrir storminn
📅 13.10.2026 👁️ 3
Lognið fyrir storminn
Landsmenn geta átt von á hægum vindi en nokkurri rigningu í dag. Íbúar á Norður- og Austurlandi þurfa þó að bíða fram yfir hádegi áður en blotnar eitt...
Lög­reglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Lög­reglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða - Vísir
Gular og appelsínugular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir morgundaginn, en gert er ráð fyrir komu mjög djúprar lægðar sem á að ganga yfir lan...
Úkraínskt skip sökk í drónaárás
📅 13.10.2026 👁️ 3
Úkraínskt skip sökk í drónaárás
Úkraínskt skip sökk í drónaárás í morgun þegar árásir voru gerða á tvö úkraínsk skip í Svartahafi.Rumen Radev forsætisráðherra Búlgaríu greindi frá þe...