Kristrún gerir Þorgerði óþarfa

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Þorgerður Katrín utanríkisráðherra skrifar Moggagrein um áskoranir íslenskra stjórnmála við að ,,gæta hagsmuna Íslands í síbreytilegum heimi." Má furðu gegna að Þorgerður Katrín sitji enn embætti utanríkisráðherra eftir að þjóðin hafnaði leiðsögn hennar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB-umsókn. Þorgerður vildi endurvekja umsóknina frá 2009 en þjóðin sagði nei.
Í Moggagreininni segist Þorgerður Katrín vakandi og sofandi að afla Íslandi vina, austan hafs og vestan. Helsta vinfengið í útlöndum aflaði utanríkisráðherra sér hjá klerkastjórninni í Íran. Auglýsingaborðar í Teheran þökkuðu Þorgerði Katrínu að taka undir gyðingaandúð með klerkaveldinu og Hamas-hryðjuverkasamtökunum. Afrekið sem íslamistar þakka utanríkisráðherra Íslands er að fjalla um yfirstandandi átök Hamas í Gasa og Ísraels án þess minnast einu orði á fjöldamorðin á gyðingum 7. október 2023.
Þorgerður Katrín ræðir ekki í Moggagreininni vinfengi sitt klerkana í Íran. Meginskilaboðin í greininni eru þau að röskur utanríkisráðherra sé vakandi og sofandi að afla vina í Bandaríkjunum sem og Evrópusambandinu. Í annarri efnisgrein segir utanríkisráðherra:
Ef ríkisstjórnin leggur áherslu á nánara samstarf við Evrópu er hún sökuð um að vanrækja Bandaríkin. Ef við styrkjum tengslin vestur um haf er látið eins og við höfum skipt um stefnu. En hlutverk ábyrgra stjórnvalda er að gæta hagsmuna Íslands í síbreytilegum heimi. Það þýðir að velja sér ekki bara einn vin, eina átt eða eitt verkefni. Heldur að geta unnið að mörgu í einu og átt marga vini.
Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snerist um hvort Ísland ætti að leggja öll eggin í sömu körfuna. ESB rekur utanríkisstefnu fyrir hönd aðildarríkjanna og gerir viðskiptasamninga við önnur ríki í nafni ESB-ríkjanna 27. ESB-aðild hefði þýtt að Íslandi ætti sér ,,bara einn vin." En þjóðin tók fram fyrir mislagðar hendur utanríkisráðherra sem kann ekki að fóta sig í ,,síbreytilegum heimi."
Þorgerður Katrín talar um að utanríkisstefna Íslands geti beinst i margar áttir í senn. Margátta pólitísk stefna, hvort heldur í utanríkismálum, menntamálum, efnahagsmálum eða öðrum málaflokkum er ekki stefna heldur merkingarlaus orðavaðall. Þorgerður Katrín stefndi á Evrópusambandið, og gerir það enn, þótt þjóðin hafi sagt nei. Með því að taka á móti utanríkisráðherra Bandaríkjanna breytti Þorgerður Katrín ekki um stefnu. Á alþingi er hennar helsta baráttumál bókun 35, um að Evrópuréttur, eins og hann kemur fyrir í EES-samningnum, standi ofar íslenskum rétti. Utanríkisráðherra vílar ekki fyrir sér stjórnarskrárbrot til að þjóna ESB-þráhyggjunni.
Kristrún forsætisráðherra situr uppi með í Þorgerði Katrínu sem á útlensku kallast ,,lame-duck". Utanríkisráðherra er útbrunninn, kominn fram yfir síðasta söludag. Ósigurinn 29. ágúst litar allar tilraunir Þorgerðar Katrínar í utanríkismálum. Ráðherra með staðfest vantraust þjóðarinnar á bakinu er ekki til stórræðanna, hvorki innanlands né erlendis. Orðaflaumur Þorgerðar Katrínar minnir á þau sannindi að áhrif smáþjóða á alþjóðavettvangi eru í öfugu hlutfalli við mælgi þeirra.
Vegna vantraustsins á utanríkisráðherra rekur Kristrún utanríkisstefnu frá forsætisráðuneytinu. Á meðan Þorgerður Katrín dygðarderrar sig í heilögu stríði múslíma gegn gyðingum og klúðrar samskiptum í austri og vestri sækir Kristrún fram í nærumhverfi Íslands.
Fyrir viku var í Reykjavík leiðtogafundur eyríkjanna á Norður-Atlantshafi. Kristrún var gestgjafi Beinis Johannessen lögmanns Færeyja og Jens-Frederik Nielsens formanns landstjórnar Grænlands. Á dagskrá voru utanríkis- og öryggismál, fjárfestingar, staðan á norðurslóðum, efnahagsmál, tollamál og viðskipti.
Fjölmiðlar eru meðvirkir ríkisstjórninni og láta vera að skrifa fréttina að Kristrún hafi bætt við sig ráðuneyti án formlegrar tilkynningar.
Næstu nærþjóðir okkar í vestri og austri skipta hagsmuni Íslands meira máli en átökin endalausu fyrir botni Miðjarðarhafs. Útspil Kristrúnar forsætisráðherra sýnir að utanríkisráðuneytið er óþarfa glingur, gerir íslenskum hagsmunum fremur skaða en gagn. Á stefnuskrá stjórnarinnar er að fækka ríkisstofnunum. Með einn forsætis- og utanríkisráðherra mætti leggja niður eins og eitt ráðuneyti. Kristrún heldur á skrautfjöðrinni en Þorgerður Katrín situr uppi með Svarta-Pétur.