Þetta sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við fréttastofu að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.
Greint var frá því í gær að Þorbjörg Sigríður hefði skipað Jarþrúði Ásmundsdóttur sem formann Jafnréttissjóðs. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins kom fram að í stjórn sjóðsins sætu auk Jarþrúðar Rannveig S. Sigurvinsdóttir, dósent við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík og Martha Lilja Olsen, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu.
Varamenn væru þeir Bjarni Þór Pétursson, verkefnastjóri hjá Vinnumálastofnun, Stefan C. Hardonk, prófessor við félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands og Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu. Sem sagt þrjár konur í stjórn og þrír karlar til vara.
Tryggvi tekur nú sæti í stjórn Jafnréttisstofu í stað Mörthu Lilju sem verður varamaður.
Þrjár sjálfstæðar tilnefningar
Þorbjörg segir skipta máli að gæta að kynjaskiptingu hjá Jafnréttissjóði sem hafi óvart verið orðinn skipaður þremur konum. Það hafi verið mistök og þau verði eðlilega leiðrétt. Endurspegla þurfi sjónarmið karla sem kvenna.
„Þetta mál stendur þannig að það hefur verið lagfært. Það skiptir auðvitað máli í öllu samhengi að við gætum að kynjahlutföllum og það virkar auðvitað í báðar áttir. Staðan er þannig að það eru ólíkir aðilar sem skipa í þessa stjórn. Ég valdi formanninn og tilnefningar fyrir hina tvo komu annars staðar frá,“ segir Þorbjörg Sigríður. Þannig hafi allir tilnefndir stjórnarmenn verið konur sem verði leiðrétt.
Jarþrúður er varaþingmaður Viðreisnar og verið virk í starfi flokksins í tæpan áratug. Skipanir í ráð og nefndir samkvæmt pólitískum flokkslínum hafa verið gagnrýndar í gegnum tíðina. Hvað segir Þorbjörg Sigríður um það?
„Ég valdi auðvitað þann formann til starfa sem hæfastur var til þess. Þarna er manneskja sem hefur mikla reynslu og góða reynslu og ég veit að mun skila mun góðu starfi.“