Óljóst er hvenær laxeldi gæti hafist í Seyðisfirði. Vá – félag um vernd fjarðar lagði í gær fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna leyfis fiskeldisfyrirtækisins Kaldvíkur fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði.
Kaldvík fékk í september leyfi fyrir tíu þúsund tonna laxeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið er með umfangsmikla starfsemi á Austfjörðum en reksturinn hefur gengið illa undanfarið.
Kærufrestur vegna leyfisins í Seyðisfirði rann út í gær og Vá lagði fram kæru. Félagið afhenti umhverfisráðherra líka þrettán þúsund undirskriftir gegn eldinu í gær og á sunnudag mótmæltu hundruð bæði fyrir austan og á Austurvelli í Reykjavík.
Ólöf Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og stoðsviða hjá Kaldvík, segir tímalínu uppbyggingar í Seyðisfirði enn mjög óljósa. Leyfið sé tiltölulega nýútgefið og ýmislegt eigi eftir að klára í stjórnsýslunni og hjá fyrirtækinu áður en uppbygging geti hafist.
„Úrvinnsla á margs konar þáttum sem tengjast leyfinu. Þannig að það er ekkert fyrirhugað í neinum tímasetningum varðandi upphaf starfsemi í Seyðisfirði.“
Félagið hefur líka, um nokkurt skeið, haft leyfi til laxeldis í Stöðvarfirði en ekki hafið þar starfsemi.
„Varðandi Stöðvarfjörð þá eru leyfi Kaldvíkur í Stöðvarfirði fyrir sterílan, eða geldan, lax og það hafa ekki verið árangursríkar leiðir til að rækta slíkan lax. Því höfum við verið að bíða eftir því að vísindamenn og okkar samstarfsaðilar eins og Benchmark þrói slíkar aðferðir. Við erum að prófa okkur áfram í að rækta geldlax og stefnum á útsetningu á næsta ári í Stöðvarfirði,“ segir Ólöf Helga.
Áföll í rekstrinum
Síðustu misseri hefur rekstur Kaldvíkur gengið illa. Afkoma fyrirtækisins var neikvæð á síðasta ári og það sem af er þessu ári hafa orðið áföll í rekstrinum.
Í haust sendi félagið tilkynningu á Kauphöllina um neikvæð fjárhagsleg áhrif affalla eftir að marglyttur komust í kvíar í Reyðarfirði. Þá drapst töluvert af seiðum við útsetningu í Fáskrúðsfirði í vor.
„Félagið hefur verið að læra á íslenskar aðstæður. Það er margt sem félagið hefur lært af þessum áföllum og er markvisst að vinna með vísindamönnum bæði hér heima og frá Noregi meðal annars, til þess að læra að búa til einhvers konar varnir og geta staðið betur til að sporna við svona áföllum í framtíðinni.“
Leyfið fyrir eldi í Seyðisfirði er verðmætt en Ólöf Helga segir ekki málefnalegt að setja það í samhengi við fjárhagsstöðu fyrirtækisins.
„Því það er ótengt. Vissulega eru verðmæti fólgin í leyfinu en það er ekki eitthvað bókfært virði sem skapast inni á reikningi félagsins, þó að með tíð og tíma muni þessi leyfi skapa virði.“
Ólöf segir að með því að hefja starfsemi í Seyðisfirði aukist stöðugleiki og auðveldara verði að stýra framleiðslunni.
En andstaða íbúa, mótmæli, undirskriftasafnanir, hefur þetta áhrif á áform Kaldvíkur á Seyðisfirði?
„Að sjálfsögðu vill félagið starfa í sátt og samlyndi við íbúa og það skiptir okkur miklu máli á komandi vikum og mánuðum að eiga samtalið, hlusta, bjóða íbúum að koma og kynnast starfseminni og koma sjálf og eiga samtalið. Það skiptir okkur máli og við leggjum áherslu á það.“