Í tilkynningu Viðreisnar kemur fram að Pawel sitji á þingi fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður. Hann hafi verið formaður utanríkismálanefndar undanfarin tvö ár og sitji í efnahags- og viðskiptanefnd, þingmannanefnd Íslands og ESB og Íslandsdeild þings ÖSE. Hann hafi fyrst verið kjörinn þingmaður Viðreisnar 2016 og aftur 2024.
„Ég er gríðarlega þakklátur fyrir að fá þetta tækifæri og fyrir það traust sem þingflokkurinn sýnir mér. Fram undan eru mikilvæg verkefni á Alþingi. Við erum til að mynda að ljúka afgreiðslu hallalausra fjárlaga sem stuðla að minni verðbólgu og lægri vöxtum, en það er eitt mikilvægasta verkefni þessarar ríkisstjórnar. Ég hlakka til að vinna að því að frjálslynd rödd Viðreisnar heyrist enn sterkar innan þings sem utan.”
Fram kemur í tilkynningunni að a sama fundi hafi María Rut Kristinsdóttir verið kjörin varaformaður þingflokksins. Grímur Grímsson hafi verið kjörinn ritari hans.