Hafrannsóknastofnun og Náttúrustofnun Grænlands hafa minnkað talsvert hve mikið er talið ráðlegt að veiða af loðnu í vetur. Í júní gerði Hafró ráð fyrir að veiða mætti rúm 358 þúsund tonn en ný ráðgjöf sem birtist í gær gerir ráð fyrir ríflega 105 þúsund tonna veiði.
Gunnþóri Ingvarssyni, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar, líst ekki vel á samdrátt í veiðiráðgjöf. Hann segir að mælingin í fyrrahaust hafi verið ein sú besta sem hafi sést. Ekki tókst að ljúka haustleiðangrinum í ár því skipin þurftu frá að hverfa vegna hafíss og veðurs.
Gunnþór er ekki reiðubúinn að gefa upp von um góða vertíð. „Ég held að það sé enn þá full ástæða til bjartsýni um að þessi ungloðna skili sér inn í vertíðina í vetur.“
Hann er þó öllu viðbúinn.
„Þegar loðnan er annars vegar er ekki á neitt að treysta. Þetta er brellinn fiskur, hefur verið það síðustu ár. Ef við skoðum söguna síðustu tíu árin er mjög jákvætt að við séum allavega að fara inn með hundrað þúsund tonna kvóta. Við höfum þá kvóta til að byrja vertíðina.“
Hann segir að setjast þurfi niður með vísindamönnum og skoða hvernig ná megi utan um mælingar á næstu mánuðum.
„Annað sem er mjög jákvætt í þessum leiðangri er að við erum að sjá góða ungloðnumælingu sem gefur tilefni til byrjunarkvóta fyrir 2028. Við höfum ekki séð ungloðnumælingar mörg síðustu ár sem gefa tilefni til byrjunarkvóta. Það er mjög jákvætt.“