Lögregla leitar ökumanns sem ók á 8 ára dreng í Mosfellsbæ á sjöunda tímanum í gærkvöld. Ók maðurinn af vettvangi eftir óhappið án þess að huga að drengnum. Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir: „Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bifreiðar sem ók á 8 ára dreng á reiðhjóli við Vefarastræti 11 í Mosfellsbæ í gærkvöld, eða klukkan 18.30. Við áreksturinn féll drengurinn af hjólinu og slasaðist, auk þess sem skemmdir urðu á hjólinu, en ökumaður bílsins ók rakleiðis af vettvangi án þess að skeyta um drenginn og líðan hans.
Lögregla leitar manns sem ók á 8 ára dreng