Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður
Pawel Bartoszek er nýr þingflokksformaður Viðreisnar. Hann tekur við af Sigmari Guðmundssyni, sem hefur óskað eftir að sinna öðrum verkefnum á Alþingi þegar hann snýr aftur úr veikindaleyfi.
Pawel Bartoszek hefur verið kjörinn formaður þingflokks Viðreisnar. Kosningin fór fram á fundi þingflokksins, að því er fram kemur í tilkynningu flokksins.
Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar sóttust fleiri en Pawel eftir þingflokksformennsku. Stóð baráttan helst á milli hans og Gríms Grímssonar þingmanns, sem var kjörinn ritari á sama fundi.
„Ég hlakka til að vinna að því að frjálslynd rödd Viðreisnar heyrist enn sterkar innan þings sem utan“
Pawel tekur við af Sigmari Guðmundssyni, sem hefur verið í veikindaleyfi en er væntanlegur aftur til starfa á næstunni. Samkvæmt tilkynningunni hefur Sigmar óskað eftir að taka að sér önnur verkefni á Alþingi.
Pawel segist þakklátur fyrir traustið sem þingflokkurinn sýni honum og nefnir afgreiðslu fjárlaga meðal mikilvægustu verkefna fram undan.
„Við erum til að mynda að ljúka afgreiðslu hallalausra fjárlaga sem stuðla að minni verðbólgu og lægri vöxtum, en það er eitt mikilvægasta verkefni þessarar ríkisstjórnar,“ segir Pawel í tilkynningunni. „Ég hlakka …