Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir eðlilegt að skiptar skoðanir séu um laxeldi. Hlutverk löggjafans sé að tryggja jafnvægi milli náttúru- og dýraverndar og grundvöll fyrir byggð víðs vegar um landið.
Hún segist hvergi af baki dottin þó að sótt hafi verið að frumvarpi hennar um lagareldi úr öllum áttum í vor.
„Frumvarpið náði ekki fram að ganga vegna þess að það er eiginlega sama hvar var drepið niður, þrátt fyrir mjög hertar dýravelferðarkröfur og mjög hertar náttúrukröfur þá var sá geiri á móti frumvarpinu, og þrátt fyrir að það var ýmislegt gert þar til að auðvelda og einfalda rekstur fyrirtækjanna, þá voru menn þar líka á móti,“ segir Hanna Katrín.
„Við erum auðvitað ekki búin að segja okkar síðasta orð um þetta en það liggur bara fyrir að ef allir aðilar ætla að gagnrýna í hæsta stigi mál sem lýtur að því að einfalda og laga og í sumum tilfellum herða á skilyrðum um mjög mikilvæga atvinnugrein og umdeilda, þá er mjög erfitt að þoka málum áfram. En við gefumst ekki upp.“
Hvetur dýraverndarsinna til að styðja frumvarpið
Fyrirhuguðu laxeldi á Seyðisfirði var mótmælt um helgina, leyfi Kaldvíkur til eldisins hefur verið kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og 13 þúsund undirskriftir gegn laxeldinu hafa verið afhentar umhverfisráðherra. Hanna Katrín ætlar að funda með forsvarsfólki undirskriftasöfnunarinnar á morgun.
Hún segist skilja sjónarmið heimamanna sem séu á móti laxeldi í firðinum.
„Ég skil það mjög vel en ég get líka mjög auðveldlega sett mig í spor þeirra sem kalla eftir aukinni atvinnu og auknum umsvifum á þessum kaldari svæðum landsins, þannig þetta er ekkert einfalt viðfangsefni,“ segir Hanna Katrín.
En dýraverndarsinnarnir, hvað viltu segja við þá?
„Við þá segi ég bara styðjið mig í að koma nýju frumvarpi í gegnum þingið af því þar eru annars vegar virkilega hertar kröfur þegar koma að dýravelferðinni og líka mjög ríkar afturköllunarkröfur á leyfum ef ekki er farið eftir lögum.“