Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að ökumanni sem ók á átta ára dreng í Mosfellsbæ um kvöldmatarleytið í gær og ók síðan á brott.
Drengurinn var á ferð á reiðhjóli við Vefarastræti 11 þegar ekið var á hann. Drengurinn féll af hjólinu og slasaðist auk þess sem hjólið skemmdist. Ökumaður bílsins ók rakleitt af vettvangi án þess að skeyta um drenginn og líðan hans, samkvæmt tilkynningu lögreglu.
Morgunblaðið ræddi við föður drengsins í dag. Hann sagði son sinn hafa verið að fara yfir götu. Hann hafi stöðvað og svipast um og farið yfir þegar bíll sem var að koma upp úr bílakjallara við götuna hægði á sér líkt og hann væri að stoppa. Bílnum hefði þó verið ekið áfram og á drenginn.
Faðirinn sagði son sinn hafa lýst ökumanninum sem ungri stúlku sem hefði verið í símanum. Hún hefði opnað gluggann og sagt eitthvað við drenginn og síðan ekið áfram. Eftir hefði drengurinn setið hágrátandi með blóðnasir og skemmt hjól.
Lögregla segir mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl eða skemmdir hafi hlotist af við svona aðstæður. Auk þess sé áríðandi að tilkynna lögreglu um atvikið þó svo engir áverkar séu sjáanlegir.