Samtök um karlaathvarf hafa opnað hjálparsíma fyrir karlmenn sem verða fyrir ofbeldi, fá ekki að hitta börn sín eða hafa verið bornir röngum sökum og vita ekki hvert þeir eiga að snúa sér. Símanúmerið er 792-1818 og öll samtöl eru trúnaðarmál.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu samtakanna sem Skessuhorn greindi frá í morgun. Með hjálparsímanum vilja samtökin bæta aðgengi karla að stuðningi og segja þörf á að huga betur að karlkyns þolendum ofbeldis og misréttis í íslensku samfélagi.
Aðstoð vegna ofbeldis og tálmana
Hjálparsíminn er ætlaður körlum sem búa við líkamlegt, andlegt, fjárhagslegt eða kynferðislegt ofbeldi í nánu sambandi. Einnig geta feður leitað þangað ef þeir fá ekki að hitta börnin sín eða umgengni við þau er tálmuð.
Þá er þjónustan ætluð körlum sem hafa verið bornir röngum sökum og vita ekki hvert þeir geta leitað. Samtökin taka jafnframt fram að karlar geti haft samband ef þeir þurfi einfaldlega einhvern til að tala við.
Segja karla síður leita sér aðstoðar
Í tilkynningunni segja samtökin að úrræði fyrir karlkyns þolendur hafi verið fá og að körlum hafi oft verið vísað frá þegar þeir hafi leitað sér aðstoðar.
„Rannsóknir sýna að karlar eru um helmingur þolenda ofbeldis í nánum samböndum. Þeir leita sér þó síður aðstoðar, meðal annars vegna þess að úrræði hafa verið fá og þeim oft vísað frá. Hjálparsíminn er fyrsta skrefið í að breyta því.“
Öll samtöl eru trúnaðarmál
Samtökin segja reynt að svara öllum símtölum. Náist ekki samband geta karlar sent tölvupóst á karlaathvarf@gmail.com og verður þá haft samband við fyrsta tækifæri.
Hjálparsíminn er 792-1818.
Tilkynningin í heild sinni:
