Starfsemi dag- og göngudeildar geðdeildarinnar við Sjúkrahúsið á Akureyri flyst aftur á lóð sjúkrahússins á næstu dögum og vikum. Vegna myglu í eldra húsnæði hefur starfsemin verið á hrakhólum undanfarna mánuði.
RÚV greindi frá því í vor að starfsemi deildarinnar hefði verið flutt í miðbæinn sökum myglu- og rakaskemmda í húsnæði á lóð sjúkrahússins. Það hús er enn lokað en starfsmenn SAk hafa innréttað og endurbætt annað húsnæði yst á lóðinni sem á að hýsa starfsemina, en það var áður þvottahús spítalans.
„Húsumsjón, eða starfsmenn húsumsjónar hafa lyft grettistaki að mínu mati að koma þeirri starfsemi inn í húsrými hér á lóð SAk,“ segir Guðjón Hauksson, forstjóri SAk.
Þvottahúsið innréttað
Nú er búið að innrétta gamla þvottahúsið með starfsemi geðdeildarinnar að leiðarljósi. Búið er að taka efri hæðina í notkun og styttist óðum í að neðri hæðin verði tilbúin. Mikil ánægja er með nýju aðstöðuna að sögn Guðjóns.
„Við væntum þess að von bráðar náum við að taka alla starfsemina hingað inn á lóð sjúkrahússins á Akureyri.“
Guðjón segir gríðarlega mikilvægt að hafa sem mest af starfseminni á sama stað.
„Það er bara mjög mikilvægt fyrir alla samræmingu á þjónustu og það er mikilvægt fyrir okkur hvernig við getum nýtt okkar starfsfólk. Það er mikilvægt upp á menningu sjúkrahússins í heild - það er mikilvægt að við séum í góðum tengslum og nálægt hvort öðru.“