Golfvöllurinn í Brautarholti á Kjalarnesi hefur ekki bara vakið athygli sem einn fallegasti golfvöllur í Evrópu heldur státar hann líka af flestum slátturóbótum á landinu.
„Þeir eru í vinnu allan sólarhringinn og þetta er afkastamesta starfsfólkið ef út í það er farið,“ segir Björn Viðar Ólason, vallarstjóri í Brautarholti. Þeir þurfi þó talsvert viðhald svo þeir fækka ekki beint starfsfólki. „Við erum með flesta róbóta í notkun eða 40.“
Og allir hafa þeir fengið sitt nafn. „Við völdum þá línu hér að skíra þá eftir rokkstjörnum. Svo hér eru allt frá Amy Winehouse til Ozzy Osbourne. Svo ef það er eitthvað vesen á þeim þá grínumst við með að þeir hafi verið of lengi á pöbbnum.“