Eigendur fasteigna í húsi í miðborg Reykjavíkur hafa beðið ósigur fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála en þeir kröfðust þess að ákvörðun byggingarfulltrúa borgarinnar um að aðhafast ekkert vegna skúrs á lóð hússins við hliðina yrði felld úr gildi. Adrei var sótt um leyfi fyrir byggingu skúrsins og eigendur síðarnefnda hússins urðu ekki við tilmælum um að leita eftir samþykki nágranna sinna fyrir skúrnum.
Ósáttir húseigendur í miðbænum þurfa að sætta sig við leyfislausan skúr nágrannanna