Upptökur af símtölum við bandarísku neyðarlínuna eftir að aftaka Christu Pike 30. september mistókst gefa til kynna að misskilningur hafi orðið milli starfsmanna fangelsins og neyðarlínunnar. Það gæti hafa orðið til þess að Pike fékk læknisaðstoð seinna en annars hefði orðið. Neyðarlínan velti því meðal annars fyrir sér hvort símtalið væri gabb.
Upptökurnar voru birtar í gærkvöldi. Þar heyrist maður sem var staddur í Riberbend öryggisfangelsinu í Nashville, þar sem tilraunin til aftökunnar fór fram, útskýra þessa tilraun.
„Við höfum gefið henni 10 grömm af pentobarbital. Manneskjan er ekki látinn enn. Við byrjuðum fyrir um það bil klukkustund síðan. Og við þurfum sjúkrabíl.“ Þá kom fram að Pike ætti erfitt með andardrátt og væri meðvitundarlaus.
Starfsmaðurinn sem tók við símtalinu bað viðkomandi um kóða til staðfestingar en fékk það svar að hann væri ekki með neitt slíkt. „Hvernig stendur á því?“ spyr starfsmaðurinn. Neyðarlínan úrskurðaði að þetta símtal væri gabb.
Hálftíma bið eftir læknishjálp
Starfsmaður neyðarmiðstöðvar Nashville reyndi þó að ná sambandi við fangelsismálastofnun Tennessee til að staðfesta misheppnaða aftöku. Hann fékk það svar að enginn frá fangelsinu hefði látið vita. Starfsmenn fangelsins sögðu jafnframt að þeir hefðu ekki hringt í neyðarlínuna og það hefði átt að vera í þeirra verkahring að gera það.
Hálftíma eftir fyrsta símtalið hringdi einn af lögmönnum Pikes í neyðarlínuna og bað um sjúkrabíl til að gera ráðstafanir til að bjarga lífi. Fyrst þá staðfesta starfsmenn fangelsins að upphaflega símtalið hafi ekki verið gabb. Sjúkralið fékk þá að komast inn í fangelsið.
Pike var fyrst í öndunarvél og það tók hana viku að komast til meðvitundar. Hún var útskrifuð af sjúkrahúsi á laugardag. Mánuðir gætu liðið þangað til hún nær sér alveg. Ekki liggur fyrir hvort, og þá hvenær, reynt verður að taka hana af lífi aftur en lögmenn hennar hafa krafist þess að dómnum verði breytt í lífstíðarfangelsi.
Pike var dæmd til dauða fyrir morð sem hún framdi fyrir rúmum 30 árum.