Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna koma saman hér í Brussel á fimmtudag og föstudag. Með þeim, að minnsta kosti í fjarsambandi, verður Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, og í ljósi þróunar mála síðustu daga er nokkuð víst að málefni Úkraínu verða í forgrunni á þessum fundi.
Í drögum að sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoganna, sem lekið hefur verið til fjölmiðla og fréttastofa hefur undir höndum, er ítarlega fjallað um stöðu mála í Úkraínu og hvað þurfi að gera.
Leiðtogarnir fagna þeim víðtæku þvingunaraðgerðum sem utanríkisráðherrar ESB ríkjanna afgreiddu í gær, segir í drögunum, og Evrópusambandið er ákveðið í að auka þrýstinginn á Rússland, segir enn fremur; núverandi refsiaðgerðir ættu að komast sem fyrst í gagnið og kallað er eftir frekari aðgerðum gegn Rússum, þar á meðal til að skerða sem mest tekjur þeirra af sölu á olíu.
Þetta síðastnefnda vekur óneitanlega athygli, aðeins nokkrum dögum eftir að Bandaríkjastjórn tilkynnti að samkomulag hefði náðst við Rússa um að auka framboðið á olíu og dísilolíu á heimsmarkaði; nokkuð sem Úkraínumenn og Evrópusambandið hafa gagnrýnt.
Drögin að sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoganna eru í stöðugri endurskoðun þessa dagana, en ólíklegt verður að teljast að tónninn hvað þetta varðar breytist að ráði þangað til á fimmtudag, eða föstudag, þegar leiðtogafundinum lýkur og yfirlýsingin verður gerð opinber.
Donald Tusk forsætisráðherra Póllands sagði í Varsjá í gær að stjórnvöld í Kreml hefðu ekki áhuga á að semja um vopnahlé í Úkraínu – hann ætlar þess vegna að kalla eftir enn frekari refsiaðgerðum á leiðtogafundinum hér í Brussel - og Friedrich Merz Þýskalandskanslari tók í sama streng í gær.