Samkomulag hefur náðst milli Ísraelsríkis og Líbanon um að framlengja vopnahlé milli landanna um einn og hálfan mánuð.
Vopnahléi sem hófst um miðjan apríl átti að ljúka á morgun, sunnudag, og sendinefndir beggja ríkja höfðu rætt möguleikana á framlengingu þess með milligöngu Bandaríkjamanna síðustu tvo daga.
Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna greindi frá niðurstöðunni og boðaði að sendinefndir ríkjanna kæmu saman að nýju í maílok til að semja drög að varanlegu pólitísku samkomulagi sem yrði tilbúið 2. eða 3. júní.
Ísraelsher hélt uppteknum hætti við árásir á Líbanon í gær þrátt fyrir samkomulagið, atlögurnar væru utan ramma þess.
Sendinefnd Líbanons fagnaði áframhaldi vopnahlésins í yfirlýsingu og sagði liðsinni Bandaríkjanna við að tryggja öryggi ryðja brautina fyrir varanlegan stöðugleika. Líbanskir ríkisborgarar fengju loks nauðsynlegt andrými.
Forsætisráðherrann Nawaf Salam sagði skömmu eftir að niðurstaðan lá fyrir að landsmenn hefðu fengið sig fullsadda af stríðum sem væru aðeins til að vernda erlenda hagsmuni og bað um stuðning Arabaríkja og alþjóðasamfélagsins í áframhaldandi viðræðum við Ísrael.