Ræðumaður á minningarathöfn vegna mannskæðrar árásar í tengslum við Pride hátíðina í Berlín hefur vakið hörð viðbrögð eftir að hún sagðist hafa vonað að árásarmaðurinn væri ekki af arabískum eða múslimskum uppruna heldur hvít kristin manneskja.
Þessi orð voru látin falla á minningarathöfn við Brandenborgarhliðið á sunnudag, daginn eftir árásina. Samkvæmt Berliner Zeitung var ræðumaðurinn söngkonan Nyya frá Berlín.
„Það sem var líka átakanlegt fyrir mig var að það fyrsta sem ég hugsaði var: Vonandi er þetta ekki Kanake, vonandi er þetta hvít kristin manneskja,“ sagði hún.
Orðið Kanake er niðrandi þýskt slanguryrði sem meðal annars er notað um fólk af miðausturlenskum uppruna.
„En svo var ekki. Við erum ekki öll í sömu baráttunni, en við stöndum hvert með öðru á augnablikum sem þessum.“
Sagðist sjálf hafa orðið fyrir áfalli vegna hugsunarinnar
Sérstaklega hefur verið bent á þá staðreynd að hún hafi lýst því yfir á minningarathöfn að hún hefði vonað að árásarmaðurinn væri hvítur og kristinn.
Í samhengi ræðunnar tók Nyya þó jafnframt fram að henni hefði sjálfri brugðið við því að þetta hefði verið fyrsta hugsun hennar eftir að hún frétti af árásinni.
Einn lést og tugir særðust
Árásin átti sér stað laugardaginn 25. júlí þegar bíl var ekið inn í hóp fólks í pride hátíðinni í Berlín. Kona lést og alls særðust 29 manns. Grunaður árásarmaður er einnig talinn hafa ráðist á fólk með eggvopni.
Grunaður maður, Abdul Ballout, 21 árs þýskur ríkisborgari af líbönskum ættum, var síðar skotinn til bana af lögreglu eftir umfangsmikla leit. Þýsk stjórnvöld hafa sagt að allt bendi til þess að um íslamska hryðjuverkaárás hafi verið að ræða.
🚨WTF. At a vigil for the Berlin Pride parade victims, an LGBTQ+ speaker says she had hoped the attacker was „not an Arab-Muslim, but a White Christian person“
These people are deranged. pic.twitter.com/vMFffgkKgB
— Inevitable West (@Inevitablewest) July 26, 2026