Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar ræddi við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í gær um landakort sem Donald Trump Bandaríkjaforset birti á samfélagsmiðlum fyrr í vikunni. Þetta sagði Kristersson í kappræðum sem hann átti við Magdalenu Andersson, leiðtoga jafnaðarmanna í sænska ríkissjónvarpinu, SVT, í gærkvöld.
Kortið sem Donald Trump birti á samfélagsmiðlum sýndi nágrannaríki Bandaríkjanna sveipuð bandaríska fánanum. Ríkin eru Ísland, Grænland, Kanada, Mexíkó og önnur ríki Mið-Ameríku og eyríki í Karíbahafi.
„Við þurfum að vera grjóthörð og mjög skýr í okkar afstöðu þegar Bandaríkin ógna hagsmunum okkar,“ sagði Kristersson. „Grænland er augljósasta dæmið og ég ræddi í dag við forsætisráðherra Íslands um þetta skelfilega kort sem sýndi Mexíkó og Ísland sem hluta af Bandaríkjunum,“ bætti hann við og sagði Svía auk þess þurfa að vera raunsæja í varnarmálum. Bandaríkin væru mikilvægir bandamenn í Atlantshafsbandalaginu en Evrópuþjóðirnar væru aftur á móti að gera sig meira gildandi þar.
Forsætisráðherrar tókust á í kappræðum
Kristersson, forsætisráðherra og leiðtogi Moderaterna, og Magdalena Andersson, fyrrverandi forsætisráðherra og leiðtogi jafnaðarmanna, tókust á í sjónvarpssal í gær í aðdraganda þingkosninga sem verða á sunnudag. Þau ræddu meðal annars fjárhag heimila, kjarnorku og umönnun eldra fólks.
Hiti færðist í leikinn þegar talið barst að löggæslu í Svíþjóð, lækkun sakhæfisaldurs og afnámi refsilækkunar fyrir ungt fólk sem fremur alvarlega glæpi. Kristersson sakaði jafnaðarmenn um að vera á móti breytingunum sem voru samþykktar á þingi í ágúst.
Stefnir í spennandi kosningar
Ríkisstjórnarflokkarnir vonast til að ágreiningurinn skili sér í fleiri atkvæðum til þeirra. Afar mjótt er á mununum og ljóst að það stefnir í spennandi þingkosningar sem gætu leitt til snúinna meirihlutaviðræðna.
Jafnaðarmenn eru eftir sem áður stærsti flokkur Svíþjóðar í nýjustu skoðanakönnunum sem gerðar hafa verið fyrir sænksa sjónvarpið, og fengju rúm 29%.
Svíþjóðardemókratar koma næstir með tæp 19%. Flokkurinn styður minnihlutastjórn Kristersson en í henni eru, auk Moderaterna, Kristilegir demókratar og Frjálslyndi flokkurinn. Samtals mælast þessir fjórir flokkar með tæplega 45% stuðnning.
Miðað við þetta gæti rauðgræna-blokkinn því tryggt sér meirihluta með fulltingi Miðflokksins sem mælist með rúm 7%.